Fréttablaðið - 24.02.2023, Blaðsíða 16
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, waage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Hugbúnaðarfyrirtækið Stefna var
stofnað árið 2003 og fagnar því
tuttugu ára afmæli í ár. Hjá Stefnu
starfa um 40 starfsmenn en helstu
afurðir fyrirtækisins eru vefum-
sjónarkerfið Moya auk fjölda sér-
lausna fyrir lítil og stór fyrirtæki
segir Kristján Ævarsson, yfir-
maður hugbúnaðarsviðs Stefnu.
„Við höfum aðstoðað fjölmörg
fyrirtæki og stofnanir með ólíkar
sérlausnir sem falla vel að þeim
kerfum sem þar eru fyrir. Þar má
meðal annars nefna að við settum
upp IP sjónvarpið fyrir Vodafone
á sínum tíma sem þau tóku svo
áfram. Við höfum smíðað kerfi
fyrir bændur sem eru í rekstri hjá
matvælaráðuneytinu og Ráðgjafa-
miðstöð landbúnaðarins. Einnig
höfum við aðstoðað Gleðipinna
og Te & kaffi í stafrænni vegferð
þeirra en allir vefir Gleðipinna-
veitingastaðanna eru með take-
away-kerfi og bókunarkerfi frá
okkur.“
Bílaumboðið Hekla er einn
af fjölmörgum viðskiptavinum
Stefnu að sögn Kristjáns en þau
hafa smíðað marga skemmti-
lega hluti fyrir þetta rótgróna
og þekkta fyrirtæki. „Hekla var
meðal annars fyrsta bílaumboðið
til að selja bíla á netinu. Nú hefur
það gert enn betur og bætt við
lausn frá okkur sem gerir við-
skiptavinum kleift að setja sinn
eigin bíl saman.“
Öðruvísi en sambærileg fyrirtæki
Kristján segir starfsfólk Stefnu hafa
tekist á við fjölmargar spennandi
sérlausnir undanfarin ár sem hafa
gengið mjög vel. „Helsti munurinn
á okkur og öðrum sambærilegum
fyrirtækjum er sá að við smíðum
sérkerfi og sjáum svo um að við-
halda og reka þau í langan tíma.
Það er eitt að smíða nýtt kerfi og
segja svo bless. Síðan er annað að
reka þau og bæta við kerfin einu,
tveimur eða mörgum árum síðar.“
Stefna var stofnað á Akureyri en
seinna meir var opnað útibú í Kópa-
vogi til að sinna betur fjölmörgum
viðskiptavinum sunnan heiða. Árið
2014 var einnig opnuð skrifstofa
í Uppsala í Svíþjóð sem er stýrt
af Birgi Haraldssyni, tæknistjóra
Stefnu.
Vel heppnuð sérlausn
Ein af vel heppnuðum sérlausnum
Stefnu að sögn Kristjáns er smíði
umsjónarkerfis flugherma fyrir
CAE Icelandair sem gjörbreytti
nýtingarhlutfalli þeirra. „Icelandair
rekur ekki bara flugfélag með til-
heyrandi flugvélarekstri, áhöfnum,
flugvirkjum og stærsta leiðakerfi
landsins, heldur er félagið einn-
ig með flugherma á Flugvöllum
í Hafnarfirði sem eru reknir af
dótturfyrirtæki þess, CAE Icel-
andair.“
Flughermarnir eru leigðir út jafnt
innanhúss til þjálfunar flugmanna
og til annarra flugfélaga sem koma
hingað til lands í þjálfun. „Eins og
gefur að skilja eru flughermarnir
sérhannaðir fyrir þjálfun á þær
vélar sem Icelandair er með í
rekstri hjá sér, sem eru Boeing 757-
200, 737-8 MAX og 767-300 ER.“
Margþættar áskoranir
CAE Icelandair leitaði til Stefnu
til að innleiða stafræna ferla og
leysa margþættar áskoranir að
sögn Kristjáns. „Meðal vandamála
sem þau stóðu frammi fyrir var að
margir ólíkir aðilar voru að bóka á
sama tíma, víðs vegar um heiminn.
Nýtingu flughermanna var því
ábótavant vegna flókins utanum-
halds og fyrirtækið var að nota
bókunarkerfi sem ekki gat leyst
sérhæfðar aðgerðir og viðmóts-
kröfur. Þarfir viðskiptavina fyrir-
tækisins voru líka ólíkar og þurfti
að taka tillit til þess.“
Starfsfólk Stefnu greindi vinnu-
lagið, hvernig æfingatímar voru
stofnaðir og bókunarbeiðnir inn í
slott. Í kjölfar greiningar var lögð
til nálgun á endurbætta ferla og
smíðað sérhæft bókunarkerfi sem
nú hefur verið í rekstri í rúmt ár
segir Kristján.
Nýting og sjálfvirkni jókst
„Ávinningurinn hefur heldur
betur skilað sér og er óhætt að
segja að bylting hafi orðið á
nýtingu og allri umsjón með flug-
hermunum. Við erum að sjá betri
nýtingu á vinnustundum starfs-
fólks í utanumhaldi, bætta nýtingu
í bókunum og um leið engar tví-
bókanir.“
Sjálfvirkni í f læði gagna úr
kerfinu hefur aukist og mikill
pappír sparast við færslu yfir í
stafrænar skýrslur þjálfunar. „Við-
mót kerfisins er mjög hraðvirkt og
hefur verið lagað að mikilvægustu
aðgerðum, sem spara tíma, tryggja
bætta nýtingu og auka ánægju
notenda kerfisins.
Síðast en ekki síst hefur sér-
lausnin skilað félaginu auknum
tekjum.“ n
Nánar á stefna.is.
„Við höfum aðstoðað fjölmörg fyrirtæki og stofnanir með ólíkar sérlausnir sem falla vel að þeim kerfum sem þar eru fyrir,“ segir Kristján Ævarsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Tæknilausnir sem bara virka
Guðmundur Örn Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
hjá CAE Icelandair Flight Training,
og Þórir Már Einarsson, ráðgjafi
og verkefnastjóri CAE Icelandair
í verkefninu, eru báðir mjög
ánægðir með samstarfið við
Stefnu.
„Starfsmenn Stefnu reyndust
mjög góðir í að taka við óskum
okkar og varpa þeim yfir í tækni-
lausnir sem bara virka,“ segir
Guðmundur Örn Gunnarsson.
Það hafi verið til fyrirmyndar
hvernig staðið var að vinnu við
þróun kerfisins hjá Stefnu. „Í
upphafi lögðum við fram ná-
kvæmar skilgreiningar á kerfinu
sem við höfðum unnið með Þóri
Má Einarssyni ráðgjafa. Stefna
tók þær, lagði fram viðmóts-
hönnun, fór yfir virknina með
okkur, smíðaði svo kerfið og
gangsetti í rekstrarumhverfi
sem hefur reynst mjög stöðugt.
Engin stórmál hafa komið í ljós
og allir hnökrar hafa verið lagaðir
hratt og örugglega.“
Hann segir kerfið þegar hafa
vakið athygli.
„Eftir að fyrsta útgáfa kerfisins
var innleidd höfum við aukið við
virkni þess. Þá hefur komið í ljós
að hönnun þess ræður mjög vel
við þessar breytingar og auð-
velt hefur reynst bæta við nýrri
virkni.“
Þórir Már Einarsson segir
áreiðanleika hafa verið lykilat-
riði í ferlinu. „Eins og kerfið er
útfært tryggir það þann áreiðan-
leika bókana sem nauðsynlegur
er í starfseminni með því að
veita okkur og viðskiptavinum
okkar aðgang að bókunum
í gegnum sama vefviðmót.
Ómögulegt væri að ná fram
sambærilegum áreiðanleika
með að viðhalda bókunum í
einhvers konar gagnagrunni og
samskiptum gegnum tölvupóst,
því breytingar á bókunum geta
orðið mjög örar.
Í framhaldinu hefur verkefnið
verið stækkað enn frekar og inn-
leiðing stafrænna ferla aukinn.“
2 kynningarblað 24. febrúar 2023 FÖSTUDAGURUPPLÝSINGATÆKNI