Fréttablaðið - 24.02.2023, Blaðsíða 28
Ég er staðráðinn í að
gefa bókstaflega allt
mitt í flutninginn.
Ragnhildur Steinunn,
Unnsteinn Manúel og
Siggi Gunnars verða
á sínum stað, stjórna
veislunni, og halda
stuðinu gangandi.
Spennuþrunginn
seinni hálfleikur
Úlfar, Kristín Sesselja, Langi
Seli og Skuggarnir, Silja Rós
& Kjalar og Sigga Ózk eiga
sviðið í Söngvakeppnishöll-
inni í Gufunesi á laugardags-
kvöld þegar seinni undanúr-
slit Söngvakeppninnar 2023
fara fram.
toti@frettabladid.is
Keppendurnir eru allir í góðum
gír og þrátt fyrir almenna og mikla
spennu er auðheyrt að öll hafa þau
notið undirbúningsins með öllum
þeim ósköpum sem fylgja því að
keppa um réttinn til þess að syngja
fyrir Íslands hönd í Eurovision í vor.
Bragi og Diljá komust áfram í fyrri
undanúrslitunum um síðustu helgi
með lögunum Stundum snýst heim-
urinn gegn þér og Lifandi inni í mér
þar sem heimurinn snerist, þvert á
söng Braga, með honum og hvergi
fór milli mála að Diljá var sprelllif-
andi inni í sér. Fyrir og eftir keppni.
RÚV sýnir venju samkvæmt,
vitaskuld og að sjálfsögðu beint frá
keppninni og kynnatríóið Ragn-
hildur Steinunn, Unnsteinn Manúel
og Siggi Gunnars halda áfram að
keyra stuðið áfram.
Þau sem heima sitja geta síðan að
sjálfsögðu tekið virkan þátt í síma-
kosningunni og stutt við bakið á
sínu fólki með því að hringja í 900-
númer keppendanna. n
Sækir jarðtengingu til ömmu
1 Betri Maður
Úlfar (900 9901)
„Ég er bara mjög vel stemmdur
fyrir stóru stundinni. Mér finnst
ég vera vel æfður og hreyf-
ingarnar eru komnar í vöðva-
minnið. Ég er búinn að setja mér
það markmið að hafa gaman af
þessu og njóta kvöldsins í botn
alveg sama hvað úr verður,“
segir Úlfar Viktor Björnsson sem
stígur fyrstur á svið á seinna
undanúrslitakvöldi Söngva-
keppninnar 2023 á laugardags-
kvöld.
„Mig dauðlangar að sjálf-
sögðu í úrslitin en það eru
fjögur önnur frábær atriði með
mér annað kvöld þannig það
er sko alls ekkert sjálfsagt.
Ég er búinn að vera að púsla
þessu saman með 100% vinnu
þannig frítíminn minn í annað
er ofboðslega dræmur,“ segir
Úlfar sem reynir að heimsækja
ömmu sína eins oft og hann
getur til þess að halda sér á
jörðinni þessa spennuþrungnu
daga.
„Ég finn að þar næ ég algerri
núllstillingu enda er hún besta
kona í heimi. Ég er svo lukku-
legur að ég er með heilan her
af fólki sem er búið að leggja á
sig að búa til allskonar flottheit
fyrir stóra kvöldið, bæði heima-
búin og prentuð plaköt, boli og
fleira.
Ég er bara svo hrikalega
meyr yfir hvað fólk er tilbúið
að styðja þétt við bakið á mér
í þessum rússíbana og það
gerir þetta allt saman þess
virði. Þetta er búið að vera langt
og strangt ferli en ótrúlega
skemmtilegt líka og lærdóms-
ríkt og þetta stóra kvöld er svo
auðvitað bara rúsínan í pylsu-
endanum. Ég er staðráðinn í
að gefa bókstaflega allt mitt í
flutninginn. Það verða öll spilin
lögð á borðið.“
Lag: Rob Price og Úlfar Viktor
Björnsson.
Íslenskur texti: Elín Sif Hall.
Steikt að syngja í sundi
2 Óbyggðir
Kristín Sesselja (900 9902)
„Ég er mjög vel stemmd fyrir
laugardeginum! Mér finnst svo
ótrúlega gaman að vera á sviði
og finnst sérstaklega gaman að
spila þegar mér þykir vænt um
lagið sem ég er að syngja,“ segir
Kristín Sesselja og bætir við að
það gildi svo sannarlega um lagið
Óbyggðir.
Hún segist einnig hafa haft
mjög gaman af öllum undirbún-
ingnum og að setja atriðið sitt
saman. „Sædís Ýr fatahönnuður
er til dæmis búin að vera í rúman
mánuð að sauma kjólinn minn
til að gera hann fullkominn. Svo
er ég búin að vera að spila út um
allt, í fyrirtækjum, leikskólum,
grunnskólum og menntaskólum.“
Hún segist einnig hafa ákveðið
að fara í sundlaugatúr. „Þar sem
ég spilaði í Vesturbæjarlaug,
Sundhöllinni og Laugardalslaug
á einu kvöldi. Það var mjög steikt
en skemmtilegt og öðruvísi gigg.
Það er búið að vera mjög
gaman og gott fyrir mig að æfa
lagið fyrir framan fólk og mér
finnst ég orðin mjög örugg í því.
Ég hef fylgst með Söngvakeppn-
inni frá því ég var mjög lítil þannig
það er algjör heiður að fá að taka
þátt og ég er ógeðslega spennt
að sýna fólki atriðið,“ segir Kristín
Sesselja þannig að eftirvæntingin
leynir sér ekki.
Lag: Kristín Sesselja Einars-
dóttir, Tiril Beisland og Vetle
Sigmundstad.
Íslenskur texti: Kristín Sesselja
Einarsdóttir og Guðrún Helga
Jónasdóttir.
Enskur texti: Kristín Sesselja
Einarsdóttir og Tiril Beisland.
Söngvakeppnin
fer fram í gömlu
áburðarverk-
smiðjunni í
Gufunesi. Undir-
búningur.
Það er algjör heiður að
fá að taka þátt og ég er
ógeðslega spennt.
Bragi og Diljá komust í gegnum fyrri undanúrslitin í síðustu viku og fá á laugardagskvöld að vita hvaða keppendur
bætast í hóp þeirra sem munu etja kappi um farmiðann á Eurovision í vor. MYND/KALLI LÚ
20 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR