Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Side 3

Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Side 3
SVFR VEIÐIMAÐURINN MÁLGAGN STANGAVEIÐIMANNA Á ÍSLANDI NR. 29 SEPT. 1954 Ritstjóri: Viglundur Möller, Útgefandi: StangaveiÖifélag Reykjavikur Ægissíðu 92. — Simi 3755. AfgreiÖsla i Veiðimanninum, Lcekjartorgi PrentaÖ i Ingólfsprenti T vertfðarlok. VIÐ höfum sjálfsagt allir orðið fyrir þvi, að einhver kunningi okkar, sem ekki fœst sjálfur við stangaveiði, gerði góðlátlegt gys að okkur þegar við komum heim lír misheppnaðri veiðiför. En að þeirra clómi er ferðin misheppnuð, ef lítið veiðist. Við segjum hins vegar flest- ir: Ferðin getur verið ágœt þótt litið veiðist. Þar kemur svo ótal margt ann- að til greina, sem hinir „innvigðu“ skilja. Og það var þetta svar, eða eitthvað á sömu leið, sem varð til þess, að einn kunningi minn, sem var að reyna að skopast eitthvað að mér fyrir veiðiáhug- ann og öngulsárin, sagði við mig núna i vertiðarlokin: „Þið eruð undarlegar mannverur, þessir veiðimenn, en það undarlegasta við ykkur er þó ekki það, að þið skuluð hafa gaman af að reyna að krækja i fisk og hanga yfir þvi dög- um og vikum saman, þótt ekkert sé að Veiðimaðurinn hafa. Það furðulegasta er, að ykkur skuli takast að telja sjálfum ykkur trú um það eftir á, að veiðileysið og vonbrigðin hafi verið einhver óviðjafnanleg sœla.“ En hann sagðist, þrátt fyrir allt, verða að viðurkenna, að það vœri nokkurs virði, að geta breytt biturri reynslu i Ijúfar minningar. Þetta samtal varð til þess, að ég fór að hugsa um grein, sem ég las einhvern tima eftir norskan veiðimann. Hann var að isegja frá veiðiferð, sem hann fór frá Hammerfest inn á Finnmörk. Hann segir að ferðin hafi byrjað þegar þeir félagar settust. upp í bílinn i Hammer- fest, hráslaglegan júlimorgunn, og óku af slað inn á auðnir Finnmerkur. En svo segir hann: „En raunar byrjaði þó ferðin alls ekki þá. Engin veiðiferð byrj- ar þannig. Veiðiferðin byrjar á hinum löngu og dimmu vetrarkvöldum, þegar 1

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.