Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Page 15
Efnilegir unglingar.
Þessi ungi maður heitir Sigtryggur Sveinn Braga-
son og á heima i Garðastrccti 33 i Reykjavik. Hann
er 10 ára gamall, sonur Braga Eirikssonar for-
stjóra, sem er einn þeirra hamingjusömu manna,
cr sumar hvert fá nokkra veiðidaga i Laxá i Aðal-
dal, og fer hann þangað venjulega i byrjun ji'ini.
í sumar lofaði hann syni sinum með sér, og h.
S. júni fékk hann að renna i Kistukvisl, sem þó
er n i'i að jafnaði ekkert „barnameðfœri“. En sá
litli var livergi smexkur, renndi í flaum hinnar
ferlegu kvislar og fann fljótlega kiþþinn, sem sumir
okkav hinna eldri þurfa oft að biða lengi eftir.
Viðureignin stóð i hálftima og veicldi hinn ungi
veiðimaður fiskinn algerlega hjálparlaust. Þetta
var fyrsti laxinn, sem veiddist i ánni á sumrinu,
og vóg 9 þund.
Veiðimaðurinn óskar Sigtryggi til hamingju með
þessa ágœtu byrjun og þykir hún benda til að
hann eigi eftir að verða liðtcekur i listinni.
Ljósm.: Böðvar Bragason.
Veiðikapþinn, sem þessi mynd er af, er 12 ára.
Hann á heitna á Akureyri og heitir Sigurður Guð-
mundsson Jörundssonar, hins landskunna skiþstjóra
og aflamanns frá Hrisey, sem er sonarsonur Hákarla-
Jörundar. Það þarf þvi engan að undra, þótt veiði-
náttúran hafi vaknað snemma i Sigurði, né heldur
þótt ibiiar liafs og vatna séu sólgnir i beituna hjá
hotium. Það er allt að þvi „visindalega sannað“,
að „veiðipaddari' er ccttgeng og kemur jafnvel
enn áþreifanlegar niður á börnunum en syndir
feðranna, og er þá mikið sagt.
Sigurður var einnig i Laxá með föður sinum, á
sama tima og Sigtryggur, og veiddi þennan fisk
á sama stað daginn eftir. Var það annar laxinn,
sem kom uþþ úr áinni á sumrinu og vóg 10 þund.
Verður ekki betur séð en að drengirnir hafi slegið
„þeim gömlu“ rcekilega við.
Veiðimaðurinn óskar Sigurði til hamingju og
telur vist að hann vilji komast i Laxá nœsta sumar.
Ljósm.: Böðvar Bragason.
Veiðímaðurinn
13