Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Síða 16

Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Síða 16
Netaveiði bönnuð í 2. liefti þessa árs af norska tímarit- inu Fiskesport, er sagt frá því, að nú sé að koma í ljós ágætur árangur af rót- tækum friðunarráðstöfunum, sem gerðar hafa verið á Bjerkreimselva á Rogalandi. Öll veiði liefur um nokkurt skeið verið bönnuð í Lauvanessundi við Egersund, en um það gengur laxinn upp í Bjerk- reimselva. í þessu sundi var áður mikið veitt í kastnætur, og segir ritið að þar hafi átt sér stað fullkomin rányrkja. Ár- eigendur í Bjerkreim hafa jafnframt sam- jjykkt að leggja niður alla netaaveiði og leyfa eingöngu stangaveiði. Annars staðar í fylkinu er einnig unn- ið að því, að auka stofninn t. d. í Sauda, og allsstaðar er aðferðin hin sama, þ. e. að takmarka netaveiðina mjög mikið eða hætta henni með öllu. Norðmenn eru almennt koinnir á þá skoðun, að neta- og gildruveiðin sé or- sök þess, hve lítið er orðið af fiski í mörgum ám, enda er reynslan búin að sanna þeim, að stöngin ein getur aldrei orðið stofninum hættuleg. ★ Þessu til viðbótar skal tekinn upp kafli úr rabbi K. S. við veiðimenn, í Morgun- blaðinu nú í sumar. Sýnir hann vel, hvort Norðmenn telja hættulegra, netin eða stöngina: „Ég sá í nokkurs konar handbók fyrir ferða- og veiðimenn, sem gefin er út á ensku af norsku ferðaskrifstofunni í Lon- don, ágætar upplýsingar um veiðivötn og veiðiár í Noregi. Þar segir m. a. frá nokkrum mjög norðlægum laxveiðiám þar í landi, þar sem hætt hefur verið við netaveiði, en stangaveiði tekin upp í staðinn. Ár á þessum slóðum eru um margt svipaðar íslenzkum veiðiám og er því ekki ófróðlegt að fylgjast með livernig mönnum gengur þar við ræktun og annað er þetta snertir. í Repparfjord-á nálægt Hammerfest á Finnmörku var t. d. árleg veiði í net komin niður í 200 kg., en síðan 1928 liefur sri á verið í höndum stangaveiði- félags og árleg veiði nú komin upp í 2000 kg. Þrátt fyrir að félagið tæki við ánni svo að segja laxlausri og leyfi nú orðið 20 stengur á uin 25 km. svæði, þá hefur þó veiðin aukizt jafnt og þétt. Félagið hefur ýmsar reglur um ána, — leyfir t. d. ekki spónveiði eða veiði með kaststöng og veiði frá bát er einnig bönnuð. Ýmsir netapostular hafa verið að halda því fram, að stöngin væri eins hættulegt \opn og netin sem veiðitæki, en reynsl- an virðist alls staðar sanna það gagnstæða þó lengra verði ekki farið út í þá sálma í bili.“ Leiðrétting. í síðasta liefti liefur með einhverjum hætti orðið einkennilegt línubrengl á bls. 10, eftir að gengið var frá síðustu próförk. Efsta línan í fremra dálki á að koma á eftir fyrstu línunni eftir fyrri greinaskilin — og verður þá setningin þannig: „þeir, sem hafa skapgerð til að hanga yfir öðrum veiðimönnum heila og hálfa daga“ o. s. frv. 14 Veiðimaðurin.n

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.