Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Blaðsíða 34

Veiðimaðurinn - 01.09.1954, Blaðsíða 34
COMMDH. H. C. NOKTON. R. N. V. R. Laxinn úr Loch Awe. ] maímánuði árið 1935 vorum \ið hjónin í firiiðkaupsferð okkar. Við vor- um gefin saman síðast í apríl, og' eftir um það bil viku dvöl í Devon, þar sem konan mín fékk sinn fyrsta lax, og' síð- an nokkra til viðbótar, héldum við í hægum áföngum norður eftir vestur- ströndinni og inn i Skotland, til I.och Awe gistihússins. Ég hafði ekki ætlað mér að veiða meira, heldur ráðgerðum við að aka þarna um nágrennið, skoða okkur um o. s. frv., og aðaltilgangurinn var að hvíla okkur eftir allt brúðkaupsumstangið. En morguninn eltir að við komum, sáum rið út um glugga gistihússins, að all rnargir bátar voru að veiðum á vatn- inu, og þegar þar \ ið bættist, að nokkrir liskar sáust stökkva, varð freistingin sterk- ari en svo að staðið yrði gegn henni. Bátur var við hendina ásamt aðstoðar- manni, sem hét Pétur, mjög þumbara- legur náungi, en átti samt eftir að reyn- ast hin mesta hjálparhella og frábær fé- lagi við nánari kynningu. Við vorum heppin fyrsta morguninn; ég fékk falleg- an 11 punda fisk á minnó. Næsti dagur er mörgum í þessum hluta Skotlands minnisstæður, vegna stróhríð- ar sem olli miklu tjóni á orrahreiðrum. Kuldinn var óskaplegur, miðað við þenn- an tíma árs, og enginn bátur sást á vatn- inn. Hins vegar hafði það alltaf verið mín reynsla (og faðir minn og vinir hans héldu því sama hiklaust fram) að lax tæki vel í hríðarveðri og jafnvel betur en nokkru sinni endranær. Samkvæmt þ\ í stuncli ég upp við konu mína, hvort við ættum ekki að prófa. Henni til ævar- andi sóma kvaðst hún þess albúin, og við héldum af stað. En yglibrúnin á Pétri og svipur gestanna í hótelinu sýndi ótvírætt, livaða hugmyndir þeir gerðu sér um mig sem brúðguma, ef ég ætlaði að fara með brúðina á veiðar í svona veðri! Austurendi Loclr Awe, fyrir neðan gistihúsið, smá-grynnkar upp að mynni Orchy-árinnar og síðan kemur stuttur kafli af sjálfri ánni — um 300 metrar — áður en komið er að stórum, lygnum hyl, sem er undir járnbrautarbrúnni á leið- inni til Oltan. Þarna safnast saman mik- ið af þeim fiski, sem gengur í Orchy, og Pétur fullyrti að vel væri þess vert, að renna þar, þrátt fyrir allar hugsanlegar tegundir af festum, sem áin liafði borið þangað. í þokkabót var svo að hrynja úr suðurbakka hylsins og þar á rneðal voru dvergeikur, sem juku hundraðfallt hættuna, ef svo skyldi vilja til að einfn er festi þarna í fiski. Aðstæðurnar úti á vatninu voru af- leitar, talsverð ágjöf, svo ekki sé rninnst á rokið og snjókomnna. Við urðum því fegin að flýja í afdrepið í ármynninu og héldum áleiðis upp í hylinn. Við Pétur 32 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.