Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 6

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 6
Ingvi Hrafn Jónsson Að gjalda skuld Það var hráslagalegt í Aðaldalnum þegar Flugleiðafokkerinn kom inn til lendingar í byrjun september sl., NA-áttin, sem gert hafði mönnum líflð leitt nær allt árið, gáraði yfírborð Laxár og það fór ekki á milli mála, að það var komið að vertíðarlokum. Ég og veiðifélagi minn, Orri Vigfússon, vorum komnir til að kveðja ána fögru áður en Vetur konungur tæki öll völd í sínar hendur. Þrátt fyrir kaldranaleika veðurs var gleði í brjóstum okkar, en örlítið trega- blandin. Við höfum undanfarin 7-8 ár veitt síðustu dagana fyrir landi Núpa og Kjalar og þessi síðasta ferð ársins er orðin okkur afar kær og kannski há- punktur vertíðarinnar. Við höfum líka lent í ævintýrum á þessum tíma og báðir sett í stórlaxa, þótt snerpa þeirra sé farin að minnka og þeir farnir að skarta hrygn- ingarklæðunum. A flugvellinum tók vinur okkar og veiði- félagi Þórður Pétursson á móti okkur. Hann var ekki sérlega bjartsýnn á að okkur yrði vel til fanga, en við létum það ekki á okkur fá, því að í hvert skipti, sem við Orri stöndum á bökkum Laxár, erum við sannfærðir um að við munum mok- veiða og hver veit nema 30 pundarinn verði nú við. Til þess að auka nú veiðilíkurnar höfðum við strengt þess heit, að reyna að skila lifandi öllum þeim löxum, sem við fengjum, niður í Laxeldisstöð Norður- lax h/f á Laxamýri, því að þar var til- finnanlegur skortur á klaklaxi. Við höfðum líka ákveðið að eingöngu skyldi rennt flugu til að auka lífslikur þeirra fiska, á blaðið og rýna í það. Nóg er eftirsóknin í veiðiárnar, ekki sízt síðan farið var með öllum tiltcekum ráðum að stefna hingað útlendingum til veiða í stórum sttl. En eitt skal að lokum sagt um stang- veiðimenn: Þeir kunna að hlakka til. Þótt samanburður við aðra sé vafa- samur í þessu tilviki sem ýmsum öðrum, minnist ég þess ekki, að hafa séð aðra eins tilhlökkun, hvað þá meiri en þá, sem Ijómar í augum og svip margra stangveiðimanna þegar líður að því að þeir komist í veiðiferð. Þetta segir að nokkru sína sögu um það seiðmagn, sem veiðiárnar búa yfir. Ritstjóri 4 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.