Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 16

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 16
legið fyrir í 5 ár, en framkvæmdir strandað á fjárskorti. Slík sleppitjörn dregur verulega úr áhrifum þeirra meginþátta, sem áhrif hafa haft á heimtur eins árs seiða síðustu ár, en það eru fyrst og fremst sleppitími og sleppistaður. Seiði eru missnemma tilbúin til sjógöngu og því mjög mikilvægt, að þau ráði sjálf sínum göngutíma og séu á fóðrum allt fram á þann dag, er þau yfír- gefa ferskvatn og halda á beitilönd hafsins. I greininni er einnig rætt um aðra þætti, sem áhrif geta haft á heimtur, svo sem heilsufar, fóður og fiskmerki. Samspil á milli þessara þátta er mjög flókið, en öll meðhöndlun, svo sem við merkingu, hefur veruleg áhrif á afkomumögu- leika seiðanna. A hinn bóginn hefur ekkert komið í ljós sem bendir til þess, að notkun mismunandi fóðurtegunda hafí haft jákvæð eða neikvæð áhrif á heimtur nema þá óbeint í gegnum meðalþyngd seiðanna. I. Inngangur. Meginhlutverk Laxeldisstöðvar ríkisins í Kollafirði er að gera tilraunir með heimtur laxaseiða úr sjó, sem m.a. beinast að því að kanna áhrif ýmissa þátta áheimt- ur, svo sem mismunandi eldisaðferða, seiðastærðar, sleppiaðferða, heilsufars og fóðurs. Þá hefur verið farið inn á nýjar brautir í seiðaeldi, sem stuðla mættu að því að gera hafbeitina hagkvæmari. Flýting hrognaklaks hefur verið snar þáttur í til- raunastarfínu sl. 5 ár. Seiði eru nú fyrst fóðruð í janúar í stað maí áður. Tilraunum með heimtur laxaseiða fylgir óhjákvæmi- lega veruleg áhætta, einkum ef lagt er út á áður óþekktar brautir, og kemur það oft niður á heildarheimtum merktra seiða það ár. Heimtur merktra seiða á tilteknu ári standa oft í öfugu hlutfalli við þá áhættu og það frumkvæði, sem tekið er í tilraun- um. Hvern hefði t.d. grunaðfyrir lOárum, að 25 gramma eins árs seiði gætu skilað sér 15% úr sjó, eins og kom fram í sleppitil- raunum 1975. Til samanburðar mánefna, að í Kanada er gerð sú krafa, að göngu- seiði séu 17 sm eða um 50 grömm, enda að meiri hluta alin á tveimur árum. Víst var stofnun Laxeldisstöðvar ríkisins árið 1961 að margra mati áhættusamt fyrirtæki og allur þorri manna var van- trúaður á, að þar mundi nokkurn tíma ganga lax. Svipaða sögu er að segja af slík- um tilraunastöðvum erlendis, enda hefur stofnun þeirra oft kostað verulega bar- áttu og þær átt erfitt uppdráttar fjárhags- lega. Það hefur oft viljað brenna við, að ýmsir aðilar hafí misskilið hlutverk tilrauna- stöðvarinnar, og árangur hefur því verið metinn eftir heildarlaxagöngu án tillits til fjölda slepptra seiða eða heildarheimtu merktra laxa án tillits til fjölda þeirra áhrifaþátta, sem verið er að kanna. Af þessum ástæðum er tímabært að gerð sé grein fyrir þeim upplýsingum, sem fengist hafa um heimtur laxaseiða undanfarin ár, og þeim áhrifaþáttum sem ráðið hafa mestu um niðurstöður hvers árs. Tekið skal fram, að gerð hefur verið nákvæm grein fyrir tilraunum fram til 1975 í ritinu ,,Islenskar landbúnaðarrannsóknir“ og vísast til þess í sambandi við öll tæknileg atriði. Reynt er að setja gögnin þannig fram, að lesendur eigi auðvelt með að túlka gögnin úr línuritum og töflum. II. Helstu þættir, sem áhrif hafa á heimtur. Rætt verður almennt um þá þætti, sem áhrif geta haft á heimtur, og hvaða breyt- ingar hafa orðið á þessum þáttum í Lax- 14 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.