Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Síða 20

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Síða 20
Þegar seiðitt hafa náð 15-20 g þyngd í upphituðum kerjum innanhúss, eru þau látin íþessar hringlaga eldisþrœr. Sumarið 1979 voru byggðar 4 slíkar þrcer íLaxeldisstöðinni t Kollafirði. Iþeim er rými fyrir nálega 100.000 gönguseiði. (Ljósm. Árni Isaksson ). fjarðarstöðinni, hvað meðalþyngd göngu- seiða áhrærir. Það sést vel á mynd 1. Eins og fram kemur á myndinni, var meðalstærð eins árs gönguseiða 35-40 grömm fram til 1974. Merktir hópar eins árs seiða voru á þessum tíma mjög sam- stæðir, þ.e.a.s. öll seiðin voru úr sömu þró í eldisstöðinni og fengu því sambærilegt atlæti í eldinu. Hiti eldisvatns var yfir- leitt hækkaður í mars til að flýta göngu- búningsmyndun og auka stærð seiðanna fyrir sleppingu. Þessir tilraunahópar voru því fremur smáir og nálega öll seiðin voru merkt. Arið 1975 var sú stefna tekin að merkja fleiri hópa eins árs seiða til að kanna heimtur seiða með mismunandi eldisforsögu. Þá var hætt að setja hita á seiðin að vorinu vegna þess, að álitið var hagkvæmara að nota takmarkaða hitaorku stöðvarinnar á minni seiði. Einnig hafði borið við, að seiði væru erfíð í meðhöndlun vegna hreistursloss við merkingu. Alitið var, að orsökin væri að nokkru of hár hiti eldvatnsins. Af- leiðing þessa var óhjákvæmilega lækkun á meðalþyngd merktra eins árs seiða, enda var endurheimta smárra seiða orðin mun eftirsóknarverðara rannsóknar- verkefni. Forsendur fyrir því að kanna endur- heimtu smærri seiða verða fyrst fyrir hendi með tilkomu örmerkingatækni í eldisstöðinni árið 1974. Arin þar á eftir var sívaxandi áhersla lögð á merkingu slíkra seiða, sem því miður reyndist full- djarft, miðað við sleppiaðstöðu í stöðinni í sleppingunni 1977, en þá var meðalstærð merktu seiðanna undir 20 grömmum. Greinilegt var, þegar þessum seiðum var sleppt vorið 1977, að þau hefðu þurft sérstaka sleppitjörn, og var einsýnt af ásigkomulagi seiðanna, að lítill árangur yrði árið eftir, sem og kom í ljós. Meðalstærð eins árs seiða, sem sleppt var 1978, var um 25 grömm. Þessum seiðum var sleppt úr sérstakri sleppi- tjörn úr varanlegu efni, sem byggð var skammt frá sjó. Þessi tjörn gaf mjög góða raun og meðalheimtur merktra seiða voru á bilinu 5 til 17% með meðal- tal um 8%, sem eru eðlilegar heimtur. Álykta má af niðurstöðum 1975 og 1978 (mynd 1), að rétt hafí verið að fara inn á þá braut að kanna heimtur 20-25 gramma eldisseiða. Líklegt er, að slík seiði verði undirstaða frekari þróunar hafbeitar í framtíðinni. I sambandi við stærð gönguseiða er rétt að minnast á meðalstærð seiða, sem framleidd voru í fóðurtilraunum með íslenskt og útlent fískfóður. Meðal- þyngd þessara samanburðarhópa er sýnd ofan á súlum á mynd 1. Hér er um að ræða tvo samanburðarhópa tveggja ára seiða 18 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.