Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Síða 21

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Síða 21
Mynd 3. Próscntuheimtur í bcsta hóp merktra scióa horin saman vió heimt kg af laxi á kg af slepptum seidum fyrir sömu hópa. Reiknaft er meö. aö 20—10 gramma seiöi skili sér sem 2.3 kg lax. en 35—50 gramma seiöi sem 2.6 kg lax. árið 1976 og sex samanburðarhópa eins árs seiða árið 1978. Seiðin voru öll jafn- stór í byrjun tilraunar. Tilraunirnar hafa allar sýnt verulega yfírburði íslenska fóðursins, hvað vöxt snertir. Heimtur virðast aftur á móti ekki vera betri heldur en sem svarar þyngdaraukningu, og sá munur kemur aðeins fram í samanburði tveggja hópa af átta. Því er ekki að neita, að mikill fengur væri í því, ef hægt væri að framleiða á hagkvæman hátt fóður, sem stuðlar að slíkum vaxtarhraða. Með því mætti fá upp mun stærri hálfsársseiði (0+) á hinum takmarkaða eldistíma. Sé vikið lítillega að tveggja ára seiðum, sést glöggt, að meðalstærð þeirra hefur minnkað hin síðari ár. Astæður þess má rekja fyrst og fremst til þess, að ekki er lengur lögð áherzla á að framleiða slík seiði í Laxeldisstöðinni, og í þessum hópi lenda seiði sem ekki ná göngustærð á einu ári. Oft vill brenna við, að kyrkingur sé kominn í vöxt þessara seiða og þau ná því sjaldan mikilli stærð. 4. Fiskmerki. Merki sett á seiði hafa veruleg áhrif á heimtur. Afyrstu árum Kollafjarðarstöðv- arinnar voru nær eingöngu notuð Carlin- merki. Það eru útvortis merki, fest með stálvír undir bakugga laxaseiðanna, og gáfu í mörgum tilfellum góða raun, þegar seiðin voru um og yfír 40 grömm. Er aug- ljóst, að þýðingarlaust var að merkja seiði undir 30 grömmum með þessari aðferð. Carlin-merkin voru notuð svo til ein- göngu frá 1966 til 1972. Vorið 1973 var gerð tilraun til merkinga með plast- merkjum, sem eru afbrigði af Carlin- merkjum, fest með polyethyleneþræði. Merki þessi reyndust prýðilega þetta ár og virtust fara betur með minni fisk heldur en Carlin-merkin. Arið 1974 hófustmerk- ingar með örmerkjum, örsmáum málm- flísum, sem skotið er inn í snjáldur seið- anna. Þessi merkingaraðferð er mjög fljótleg og opnuðust því möguleikar til að kanna mun fleiri þætti í sambandi við sleppingu gönguseiða heldur en áður var VEIÐIMAÐURINN 19

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.