Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Blaðsíða 32
gerð á Sandá, og ætti þá ekkert að vera því
til fyrirstöðu að veita í hana jökulvatninu,
sem nú fer í Tungufljót.
Ný veiðisvæði:
Undirritaður hefur verið samningur um
veiðirétt í Sogi fyrir landi Syðri-Brúar
í Grímsnesi 1980, en þar er veitt á eina
stöng. Þá hefur náðst samkomulag við
eigendur Bíldsfells í Grafningi um veiði-
rétt í Sogi á næsta sumri. Þar er veitt á
þrjár stengur.
Á aðalfundi Landssambands stangar-
veiðifélaga í Ölvusborgum 27. - 28. októ-
ber sl. mættu 28 fulltrúar fyrir hönd
SVFR. I bréfí dags. 8. nóvember óskaði
stjórn L.S. eftir áliti SVFR áhugmjmdum
um útgáfu veiðikorta, er öllum stangveiði-
mönnum yrði skylt að kaupa og framvísa
við kaup á veiðileyfum, en tekjur af
sölu kortanna skyldu renna „til fisk-
ræktarsjóðs, eflingar fískræktar og rann-
sókna á sviði fiskræktar og veiðimála.“
Tillaga þessa efnis kom fram á aðalfundi
L.S., en náði ekki fram að ganga. Þetta
var tekið fyrir á sameiginleguín fundi
stjórnar og fulltrúaráðs SVFR, og var þar
samþykkt að hafna þessari hugmynd.
Að loknum umræðum um skýrslu
formanns og reikninga félagsins, sem voru
samþykktir, var samþykkt tillaga stjórnar
um hækkun félagsgjalds í kr. 12.000 og
inntökugjalds í kr. 25.000.
Þá fór fram stjórnarkjör. Magnús
Ólafsson gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs í formannssæti, og var Karl Ómar
Jónsson kosinn formaður SVFR. I aðal-
stjórn voru ennfremur kjörnir þeir
Ólafur G. Karlsson til eins árs og Þórður
Jasonarson og Halldór Þórðarson til
tveggja ára, en Karl Guðmundsson situr
áfram án kosningar. í varastjórn voru
kosnir Sverrir Þorsteinsson, Jón G.
Baldvinsson og Guðmundur Guðmunds-
son, en Runólfur Heydal gaf ekki kost
á sér til endurkjörs í varastjórn.
í fulltrúaráð voru kosnir sömu menn
og sæti áttu í ráðinu sl. ár, nema Eyþór
Sigmundsson tekur sæti Halldórs
Þórðarsonar, sem nú var kosinn í aðal-
stjóm félagsins. Formaður ráðsins er
Magnús Ólafsson fráfarandi formaður
SVFR, en Sigmundur Jóhannsson elstur
fv. formanna félagsins, sem sæti áttu í
ráðinu, lét ’af störfum.
/ tilefni af )y4ri trésins“ samþykkti
stjórn SVFR að veita 250 þús. kr. til
kaupa á trjáplöntum, sem gróður-
settar skyldu í nánd við veiðihúsið
við Elliðaár. Laugardaginn 7. júní
komu nokkrir félagar úr SVFR inn
að Elliðaám og settu niður um 300
plöntur, og er myndin tekin við það
tækifœri. Ljósm. R.H.
30
VEIÐIMAÐURINN