Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 37
lega fyrir honum þessum. Hann gat varla
verið minni en 25 pund. Hann tók svo
svakalega í. Þetta hlaut að vera stein-
bítur! „Nei“ varla hér í Stóru-Laxá. Og
nú sá ég hann. Það gat varla verið að þetta
væri sá sem bitið haíði á hjá mér fyrir smá
stundu. Þessi sem var með öngulinn uppí
sér var varla meira en 15 pund. (Manni
getur nú skjátlast). Laxinn tók nú af skarið
og tók stefnuna undir stóran stein. Þar yrði
hann líklega það sem eftir væri sumars.
Hann virtist ekki hafa hinn minnsta áhuga
á að hreyfa sig. Ég sá aðeins hausinn á
honum. En svo eftir smá-stund hreyfði
hann sig. Hefur líklega verið búinn að fá
leið á að horfa á mig. (Engin furða). En
hann færði sig bara að næsta steini. Var
greinilega að reyna að taka mig á taugum.
Og enn færði hann sig, en nú fann hann
greinilega ekki annan stein. Leiðinlegt. En
þá gerði laxinn bara annað, sem mér fannst
ekkert skemmtilegt. Hann losaði sig við
öngulinn og sagði bless. Og synti í burtu
og hvarf í strauminn.
Frá gljúfrunum (svceði IV).
Leifur Benediktsson við veiðar á svceði IV i Stóru-
Laxá.
Netaveiði að drepa ána!
Stóra-Laxá er án efa einhver skemmti-
legasta á landsins. Það sem vakti athygli
mína þegar ég var við veiðar þarna síðasta
sumar, var það hvað lítið er af stórum laxi.
Sá ég aðeins tvær laxatorfur. Það var ekki
til stór lax í þeim. Þetta hafa verið svona
hundrað laxar. Enda þarf ekki annað en
kíkja á stærstu laxana síðasta sumar. Sá
stærsti sem veiddist var um 20 pund. Það
er án efa eindæmi í sögu þessarar merki-
legu ár, að í veiðitöflu um stærstu laxana er
15 punda fiskur með yfír þá stærstu. En
hvað veldur þessu? Jú, það er fyrst og
fremst hin gífurlega netaveiði, sem er
stunduð í Olfusá. Þar er net við net og ekki
möguleiki að laxinn geti sloppið framhjá.
Eini möguleikinn er sá, að laxinn komi áður
en netin eru lögð á vorin. Þessar netaveiðar
þarf að endurskoða strax. Ef ekkert verður
gert til að sporna við þessu, mun Stóra-
Laxá deyja út með tímanum. Þetta er svo
sannarlega mikið mál fyrir stjórn félagsins.
Er hægt að horfa á netaveiði drepa niður
veiðina í Stóru-Laxá? Stóri laxinn sleppur
ekki í gegnum tugi neta í Ölufsá.
VEIÐIMAÐURINN
35