Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Síða 39

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Síða 39
Mjög mikið af laxi kemur oft upp í einu, og komið hefur fyrir, að stangveiðimenn hafi séð vel þessar göngur, eftir að þeir höfðu rengt frásagnir mínar, sem ef til vill var ekki nema von. Minna ber á laxinum í svona vatnakerfi en víða annars staðar. Og tölur um veidda laxa eru alls ekki í sam- ræmi við laxamagnið, og er það nokkuð auðskilið. Mörgum þykir ekki veiðilegt í vötnum og hafa jafnvel fordóma þar um. Hér er ekki veiðihús, og sumir veiðimenn gefa lítt upp veiði sína. Laxveiðin á stöng hefur verið um 100 laxar að jafnaði árin 1972-1974, um 200 laxar árin 1975-1977, en síðustu árin hafa veiðzt um og yfir 300 laxar. Aukning veið- innar er ekki vegna aukinnar laxgengdar, heldur hafa seinustu ár komið fleiri veiði- menn til að veiða í vatnasvæðinu, og oft verið uppselt vikum saman. Veiðistaðirnir hafa líka fundizt smám saman, en þeir eru furðu nákvæmlega staðsettir, og ekki mjög margir. Ég vil halda því fram, að veiðimenn úr þorpunum hér á Snæfellsnesi eigi að miklu leyti heiðurinn af því að finna beztu veiði- staðina í vötnunum. Hér vestra eru margir fengsælir og ágætir stangveiðimenn. Það vill nú brenna við, að reykvíkingar koma og renna allan daginn í hópinu og ánni, og fá ekki neitt. Þetta eru ef til vill margreyndir veiðimenn, fullir sjálfstrausts og þurfa ekki að spyrja sveitamanninn. En hópið er að nokkru leyti gegnumhleypisvatn, og getur verið laxlaust hvenær sem er. Hér verða ekki nefnd nöfn þeirra mörgu, er hafa greitt götu okkar, sem höfum viljað gera þessa á að því góða veiði- og útivistarsvæði, sem hún vissulega er. Ekki verða heldur taldir upp þeir ágætu veiðimenn, sem hafa veitt hér mikið og vel og gerst ágætir vinir okkar heimamanna. En ágætan stuðning og vinsemd Veiði- málastofnunarinnar má gjaman nefna. Gaman væri að reyna að hugsa sér, hvernig veiðiá þessi hafi verið áður en menn gengu þar fyrst fram á bakka. Skammt frá ánni var bústaður Langholts- Þóru, er reisti skála um þjóðbraut þvera og veitti vegfarendum af frægri gestrisni. Ef til vill hefur auðveiddur og ljúffengur sjó- birtingur úr Vatnsholtsá verið þar á borðum Forsíðumyndin Myndin sýnir veiðimenn t Soginu. Sá, er ncer stendur, veiðir á Tóftinni fyrir landi Bíldsfells, en hinn á Breiðunni, út af Frúarsteini, fyrir landi Asgarðs. Ljósmyndarinn okkar, Rafn Hafnfjörð er nýbúinn að setja í hann þarna, en kona hans smellti af í þetta skipti. VEIÐIMAÐURINN 37

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.