Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 42

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 42
Sigmundur Jóhannsson F. 5.11.1896 - D. 30.12.1979. Minningarorð Frá því að síðasta tölublað Veiðimannsins kom út hefur enn fækkað um einn þeirra stofnenda Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem eftir voru á félagaskránni. Sigmundur Jóhannsson lést 30. desember sl. Hann hafði átt við erfiðan sjúkleika að stríða síðari árin, en bar það mótlæti með þeirri karlmennsku og rósemi, sem hann var gæddur í ríkum mæli. Sigmundur var áhugasamur félags- maður og fór fljótlega að taka virkan þátt í félagsstarfi SVFR eftir stofnun þess. í nóvember 1944 var hann kjörinn for- maður, en gegndi því starfi stutt sökum þess, að hann fór fljótlega á eftir af landi burt og kom ekki heim aftur fyrr en 1946. Það ár varð hann varaformaður og skipaði það sæti í stjórninni til aðalfundar 1949. Þegar fulltrúaráð félagsins var stofnað var hann, samkvæmt reglum ráðsins, sjálf- kjörinn í það sem fyrrverandi formaður SVFR og átti þar sæti til aðalfundar 1979. Hann lét sér alla tíð mjög annt um hag félagsins, kvaddi sér oft hljóðs á fundum, var tillögugóður og flutti alltaf mál sitt með hógværð og prúðmennsku. Þeim sem veiddu með Sigmundi, ber saman um að hann hafi verið einkar tillitssamur og góður veiðifélagi. Hann veiddi því nær eingöngu á flugu. I viðtali sem birt var í 48. tölublaði Veiðimannsins, sagði hann m.a. „Jú, ég hef stundum með mér maðk, en ég nota Sigmundur Jóhannsson hann lítið og aldrei fyrr en ég tel það full- reynt, að fiskurinn taki ekki fluguna. Og það vil ég segja að lokum, að menn ættu að byrja strax með fluguna. Ymsum byrjend- um hættir til að vantreysta sér þar um of. Eg veit það af eigin reynslu, að ég hafði ósköp litla trú á því, að mér myndi takast að setja í lax og halda honum á fluguna, þegar ég fór að reyna hana fyrst. En þetta er ekki eins erfitt og margur heldur, og menn njóta ekki til fulls ánægjunnar af stangveiðinni fyrr en þeir eru farnir að veiða á flugu með léttum tækjum. Og einu vil ég bæta við: Menn þurfa að eignast góð tæki strax og læra réttu handtökin. Með því halda þeir mörgum laxinum, sem þeir annars mundu missa, og spara sér marga fluguna, en þær eru nú farnar að kosta svo mikið, að það er dýrt að fleygja þeim af sér mörgum á dag.“ Síðustu árin gat Sigmundur lítið staðið 40 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.