Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Blaðsíða 44

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Blaðsíða 44
sem fjallaði um fiskveiðar. í einum sýn- ingarbáfnum gat að líta ólögleg veiðar- færi, og kenndi þar margra grasa. Má þar nefna 240 krókstjaka og skutla, sem höfðu verið teknir af veiðiþjófum á bökkum ánna Welsh Usk og Ebbw. Ennfremur mátti sjá úrval stungugaffla, sigða og krókhrífa. Ein slík hafði verið tekin af þjófum við ána Derwent. Við hana voru fest bönd og hún síðan dregin af tveimur mönnum eftir ánni. Við krókahrífuna var fest ostra til að laða að físk. Þarna voru líka ýmsar gerðir af ljóskerjum, allt frá einföldum hænsna- lugtum til prímusljósa af nýjustu gerð, en sú nýjung auðveldaði veiðiþjófnað að næturþeli til muna. Þannig tóku veiði- þjófarnir nýjustu tækni og vísindi í þjónustu sína, engu síður en aðrir. Skotland. Að öllum líkindum var veiðiþjófnaður hvergi jafn algengur á Bretlandseyjum og í Skotlandi. Þar þótti það álíka góð skemmtun og afþreying að stelast í lax- veiðiá og að veiða skógardýr í heimildar- leysi. Allar stéttir tóku þátt í þessu sporti, háir sem lágir, bændur og búalið, borgarar og burgeisar. Þess hefur áður verið getið, að Sir Walter Scott, sá frægi rithöfundur, skrifaði af miklu umburðarlyndi um veiði- þjófnað. í bók hans, GUY MANNER- ING, segir frá því þegar aðalpersónan fer með gesti sína niður að laxveiðiá mikilli að nóttu til um hávetur. Gestgjafinn og allt hans fólk var hlýlega búið loðfeldum, því úti var napurt. Ekki skorti slektið brjóst- birtuna, meðferðis var hið nafntogaða Edinborgaröl í kassavís. „....Þegar við komum niður að ánni, voru þar fyrir nokkrir menn á bátsskel. Þeir höfðu lagst við stjóra þar sem áin rennur í djúpum hyl. Litlu ofar, þar sem áin grynnist, var saman kominn múgur og margmenni. Mann- söfnuðurinn var á harðahlaupum upp og niður árbakkann, veifandi logandi kyndlum og spjótum. Menn voru greini- lega í miklum veiðihug. Dauðskelkaðir laxar reyndu að komast undan spjóta- lögunum allt hvað þeir gátu, sumir með því að skjótast með leifturhraða upp ána, aðrir leituðu skjóls bak við steina eða undir kræklóttum trjárótum, sem áin hafði hrifs- að til sín og stóðu á grunni. Þessi sýn var óhugnanlega forneskjuleg og minnti einna helst á einhvers konar fírrta trúarathöfn frummanna, hrópin og köllin á bakkanum, snöggar hreyfingar bátsverja sem reiddu ljóstur sín til höggs og sveifluðu þeim síðan eldsnöggt niður á við. Skvamp. Svo réttu þeir úr bökum sínum á ný og kipptu sprikklandi laxinum inn fyrir borðstokkinn. Þarna djöfluðust þeir í fölrauðum bjarmanum af flöktandi kyndlunum, sem brá undarlegri birtu á heggbarin andlitin. Óneitanlega var eins konar vítisblær yfír því sem fyrir augun bar. Endrum og eins ruddust ísspangir niður ána, en bátsverjum tókst að verjast áföllum. Þeir kunnu sannarlega vel til verka og viku til hliðar af mikilli fími. Laxinn skaust á trylltu sundi fram og til baka, spjótin klufu loft og vatn, og ekki leið á löngu þar til að því kom að báturinn var fullhlaðinn. Það blikaði á laxinn þar sem hann braust um alblóðugur í dauðateygj- unum. Það var róið í land. Upp úr bátnum komu um eitthundrað laxar. Næst var aflanum skipt. Vænustu laxarnir komu í hlut stórbænda. Afgangnum var deilt milli vinnumanna, sveitarómaga og annarra minni spámanna, sem höfðu verið við- staddir slátrunina. Þegar heim var komið var gert að aflanum. Pottur var settur á hlóðir og soðinn lax. Það sem ekki fór í pottinn var flakað, saltað og hengt upp í rjáfur þar sem tað - eða móreykur lék um 42 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.