Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Qupperneq 56
Úr Svínadal. Glammastaðavatn og fjcer sést til Geitabergsvatns. Bcerinn Þórisstaðir sést á miðri mynd.
(Ljósm. E.H.)
og þar eru 35 bújarðir. Þó má greina þar
stefnu í átt til jöfnunar á arði.
Vissulega hafa verðmæti laxveiðinnar
á svæðinu aukist mikið, sérstaklega síðustu
10 til 15 árin. Til fróðleiks má geta þess,
að veiðitekjur félagsins námu 1979 um 30
milljónum króna. Auk þess leigja bændur,
sem eiga vötnin í Svínadal, veiðina í
þeim til stangveiði.
Stórn veiðifélagsins.
Fyrsti formaður veiðifélagsins við Laxá
var Sigurður Sigurðsson, hreppstjóri í
Stóra-Lambhaga, og var hann formaður
allt til ársins 1953, en þá tók við for-
mennsku í félaginu Júlíus Bjarnason,
bóndi, Leirá, og gegndi hann því starfi
til 1958. Það ár var kjörinn formaður
Sigurður Sigurðsson, hreppstjóri, Stóra-
Lambhaga, sonur fyrsta formanns félags-
ins, og er hann því búinn að vera formaður
félagsins í 21 ár. Aðrir í stjórn eru Jón
Bjarnason, Hlíð, Jón Eggertsson, Eyri,
Kristinn Júlíusson, Leirá og Þórður
Jóhannsson, Bakka.
Veiðimannahús, hjá Laxfossi í Leirársveit. (Ljósm. E.H.).
54
VEIÐIMAÐURINN