Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2023, Blaðsíða 12

Ægir - 01.01.2023, Blaðsíða 12
12 „Þær framkvæmdir sem nú standa yfir í höfninni hjá okkur munu standa næstu tvö árin og þær eru nauðsynlegar til að mæta síaukinni umferð um höfnina, sér í lagi aukn- um vöruflutningum. Það er hins vegar alveg ljóst að strax og þessum áföngum lýkur þá þurfum við að ráðast í ennþá viðameiri fram- kvæmdir með stækkun hafnarinnar því hafnarþjónusta okkar þarf að geta mætt þeim vexti sem við sjáum í vöruflutningum, sér í lagi tengt landeldi á laxi hér á svæðinu og sí- vaxandi útlutningi á jarðefnum,“ segir Benjamín Ómar Þorvaldsson, settur hafnarstjóri sveitarfélagsins Ölfuss, um framkvæmdir í höfninni í Þorlákshöfn sem nú standa yfir. Stærri skipum auðveldað að athafna sig Framkvæmdirnar sem hófust í höfn- inni í fyrra eru fjölþættar. Nú er unn- ið að því að reka niður stálþil en einn- ig verður gömul bryggja rifin, hún endurbyggð og snúið um leið. Þá er byrjað að lengja Suðurgarð um 250 metra og annar hafnargarður verður færður til að skapa meira rými innan hafnar. Loks verður öll höfnin dýpkuð í 9-9,5 metra. Dýpkunin verður loka- áfangi þessarar framkvæmdahrinu, að sögn Benjamíns. „Bæði dýpkunin og aðrir fram- kvæmdaþættir miða að því að skapa meira rými innan hafnar fyrir stóru skipin að snúa og athafna sig. Hag- kvæmni í flutningum yfir hafið byggist á því að sigla á stórum skipum og við þurfum að geta mætt þeirri þróun,“ segir Benjamín en milli Þorlákshafnar og Rotterdam sigla ferjurnar Astral, Akranes og Mykines vikulega. Flutn- ingar þeirra fara vaxandi með ári hverju og sama þróun er í flutningum annarra vöruflutningaskipa sem um höfnina fara. Kolefnissporið skiptir máli Benjamín segir áhugann á höfninni stöðugt fara vaxandi enda stytti það siglingaleiðina talsvert að koma inn í Þorlákshöfn í stað þess að sigla á höf- uðborgarsvæðið. „Kolefnissporið fær sífellt meira vægi þegar er verið að skoða siglingar, ekki bara gagnvart vöruflutningaskipum heldur einnig gagnvart fiskiskipum. Þegar fiskiskip eru á miðunum úti fyrir suðurströnd- Stöðugur vöxtur í flutningum í Þorlákshöfn  Flutningaskipin Astral, Mykenes og Akranes sigla vikulega milli Þorlákshafnar og Rotterdam. Vöruflutningar um höfnina vinda sífellt upp á sig og munu fyrirsjáanlega gera áfram. Hafnaþjónusta

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.