Ægir - 01.01.2023, Blaðsíða 13
13
inni þá kjósa þau í vaxandi mæli að
koma hingað inn til löndunar og flytja
fiskinn landleiðina þangað sem vinnsl-
urnar eru á landinu. En hvað vöru-
flutningana varðar þá eru stöðugt að
koma til okkar hugmyndir um nýjar
áætlunarsiglingar en ótímabært að
fjalla um þær fyrr en þá eitthvað yrði
fast í hendi,“ segir Benjamín.
Höfnin í lykilhlutverki í
landeldisuppbyggingunni
Gríðarlega umfangsmikið landeldi á
laxi í nágrenni Þorlákshafnar er að
byggjast upp og framleiðsla eldisaf-
urða til útflutnings á svæðinu mun
stóraukast á komandi árum, gangi öll
þau áform eftir sem ýmist er búið að
hrinda í framkvæmd eða eru á undir-
búningsstigi. Í þeirri uppbyggingu
gegnir höfnin lykilhlutverki.
„Við erum í þeirri stöðu að sjá fram
á verulegan vöxt í starfsemi hafnar-
innar sem útflutningshafnar á kom-
andi árum. Af þeirri ástæðu getum við
ekki látið staðar numið í uppbyggingu
hennar og sjáum þörf fyrir verulega
stækkun í beinu framhaldi af þeim
framkvæmdum sem nú er unnið að. Sú
stækkun er þegar komin á teikniborðið.
Núverandi framkvæmdir eru á áætlun
til 2025 og þá þarf stækkun hafnarinn-
ar til norðurs að taka við. Útflutningur
á eldisafurðum verður vaxandi þáttur
á komandi árum, það liggur alveg fyrir.
En við sjáum einnig verulegan vöxt í
útflutningi á jarðefnum til Evrópu-
landa og á hverju ári eykst almenn
frakt sem um höfnina fer,“ segir Benja-
mín og játar því að mikið sé sótt í lóðir
í nágrenni hafnarinnar af fyrirtækjum
sem sjá sér hag í að setja upp starfsemi
sem nýtir útflutningsmöguleikana sem
millilandasiglingarnar frá Þorlákshöfn
hafa opnað.
„Við höfum landrými hér við höfn-
ina til að mæta þessari eftirspurn og
hún er vaxandi,“ segir Benjamín.
Benjamín Ómar Þorvaldsson, settur hafnarstjóri í Þorlákshöfn.
Nú er verið að reka niður stálþil í höfninni, sem er einn margra þátta í heildar-
framkvæmdum sem munu standa næstu tvö árin í höfninni.