Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.2023, Side 25

Ægir - 01.01.2023, Side 25
25 ur upp og þegar þetta er svona mikill massi þá eru mikil læti þegar pokinn kemur upp, svo mikil að jafnvel þó að við séum að draga á um 3 mílum þá stoppast skipið. Jafnvel getur veiðarfærið dregið skipið afturábak þegar það kemur upp með mikinn afla. Þetta getur oft verið mikið sjónarspil og en er sannarlega ekki skemmtilegt ef eitthvað slitnar. Slíkt ger- ist, sérstaklega á Rockall svæðinu þar sem fiskurinn er stór og þéttar torfur. Þá er togað stutt og mikið magn sem kemur í trollið. Þá kemur fyrir að pokinn hrein- lega slitnar af belgnum þegar er híft,“ segir Bjarki. Reynslumikil áhöfn Í áhöfn Sigurðar VE eru átta menn og það segir Bjarki að sleppi til þegar ekk- ert kemur uppá. Erillinn sé mikill á nóta- veiðunum en rólegra á mannskapnum á flottrollinu. „Verkefnin um borð eru alltaf næg. Það þarf stöðugt að þrífa, bæði úti á dekki og svo allar vistarverur. Þetta er okkar vinnustaður og annað heimili þar sem við dveljum stóran hluta úr árinu. Það skiptir miklu máli að halda skipinu snyrtilegu og hugsa vel um það. Í dag- legri vinnu um borð skiptir miklu máli að hafa reynda menn og hjá okkur hefur t.d. nánast engin breyting orðið á hópn- um síðustu 4-5 árin. Allir vita að hverju þeir ganga. En þegar talað er um breyt- inguna frá eldri skipunum til nútímans þá eru samskiptakerfin í hjálmunum gríðarlega mikið framfaraskref, allir með hlustunarbúnað tengdan í eitt kerfi og hljóðnema. Það er af sem áður var þegar kallað var úr brúarglugganum út á dekk og fæstir heyrðu almennilega það sem skipstjórarnar voru að reyna að koma til skila. Ég er ekki í nokkrum vafa um að hjálmakerfin hafi líka fækkað slysum á skipum. Þau eru klárlega framfaraskref,“ segir Bjarki. Meiri verkefni fyrir uppsjávarskipin en áður Eftir að Bjarka snerist hugur með neta- gerðarnámið á sínum tíma fór hann í stýrimannsnám í Vestmannaeyjum og hefur síðan verið í stýrimannshlutverk- inu. Reyndar hefur hann líka verið í skipstjórastólnum, var til að mynda skip- stjóri á uppsjávarskipinu Suðurey VE á síðustu loðnuvertíð. Skipstjórnin segir hann að sé aðeins öðruvísi hlutverk en stýrimennskan en allt sé þetta honum kunnuglegt eftir langan tíma í brúnni. Bjarki segir að stóri munurinn í upp- sjávarsjómennskunni í dag miðað við fyrri tíð sé sú að nú hafi skipin mun meiri verkefni sem geri þeim kleift að vera á sjó árið um kring. Algengt sé að á uppsjávarskipunum sé tvöfalt kerfi, þ.e. tvær áhafnir sem skiptist á. „Þegar ég var að byrja í þessu á sín- um tíma þá voru nótaskipin bara á loðnu og svo var eitthvað gutlað í síld á haust- in. Síðan þá hafa kolmunnaveiðarnar bæst við, norsk-íslenska síldin á sumrin og svo makríllinn á síðustu árum. Í dag eru sjómenn á uppsjávarskipum ekki al- mennt líka í öðrum störfum inn á milli eins og algengt var á sínum tíma og ég gerði sjálfur. Menn eru bara í fríi ef ein- hver stopp eru á skipinu. Sem dæmi stoppuðum við eftir kolmunnatúrinn nú í byrjun janúar en síðan reikna ég með að eftir loðnuveiðarnar nú í vetur verð- um við með næg verkefni fram í desemb- er,“ segir Bjarki. Loðnuvertíðin mikið spurningamerki Aðspurður segist Bjarki ekki alltof bjart- sýnn á loðnuveiðarnar nú í vetur í ljósi umræðunnar um stöðu loðnustofnsins framan af vetri á síðustu vikum. „Ég skal alveg viðurkenna að ég er svolítið smeykur hvað varðar loðnuver- tíðina núna. Mælingin á ungloðnu lofaði mjög góðu í fyrra og maður var bjart- sýnn en það er sérkennilegt að öll sú loðna komi hvergi fram í mælingum núna. Í gegnum árin hefur maður hins vegar séð það gerast að loðnan sjáist lít- ið fyrr en hún birtist skyndilega í stórum torfum hér fyrir suðaustan landið. Slíkt gæti alveg gerst og væri ekki í fyrsta skipti. Og þá er eins gott að menn séu  Í brúnni á miðunum. Bjarki í stýrimannsstólnum og Hörður Már Guðmundsson, skipstjóri, fylgist með út um brúarglugg- ann.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.