Ægir - 01.01.2023, Qupperneq 32
32
Simrad hefur í gegnum árin verið
þekkt fyrir mjög gangörugga og
góða höfuðlínusónara og hefur nú
kynnt til leiks nýjan höfuðlínusónar
sem ber nafnið FM 90i. Simrad í
Kanada, sem framleiðir þessa són-
ara, fagnar um þessar mundir 50
ára afmæli.
Ekkert fer framhjá
skipstjórnarmönnum
Flestir skipstjórnarmenn sem stunda
flottrollsveiðar þekkja Simrad FS 70
höfuðlínusónarinn, sem kom á mark-
aðinn upp úr 2000 og hefur hann
reynst einstaklega áreiðanlegur og
endingargóður. Simrad FS 70 höfuð-
línusónarinn er byggður á sveifluhaus
sem teiknar upp trollopið í skrefum.
Það getur tekið upp í 1 mínútu að
teikna upp allt trollopið.
Nýi sónarinn, FM 90i, sýnir allt
troll opið í einni sendingu (omni) og fer
þá ekkert framhjá skipstjórnarmönn-
um. Auk þess sem sónarinn sýnir allt
trollopið á um sekúndu fresti þá sýnir
hann einnig mynd beint niður, hita,
dýpi, veltu og vagg.
Margfaldur samkiptahraði
„Samskipti milli höfuðlínusónarsins og
skips eru nú orðin margfalt hraðvirk-
ari en áður hefur þekkst gegnum kop-
arkapal. Nýtist þessi hraði fyrir marg-
vísleg önnur samskipti, t.d. er nú í
FM90i höfulínusónarnum fullkominn
trollnemamóttakari sem getur tekið
við öllum trollnemum, þ.e. hleranem-
um, aflanemum, straumnemum,
belgsjá og fl.
Þessi möguleiki er einstaklega góð-
ur, sérstaklega þegar togað er með
veiðarfæri í yfirborðinu. Þá getur ver-
ið mjög erfitt að ná móttöku upp í skip
frá nemum á trollinu,“ segir í upplýs-
ingum frá Simberg ehf., söluaðila Sim-
rad hér á landi.
Simberg ehf.
Nýr höfuðlínusónar frá Simrad
Hægt er að tengja trollmyndavélar í gegnum FM 90i
höfuðlínusónarinn og fá þannig lifandi mynd úr veiðar-
færinu á skjá í brúnni. Hér er mynd úr fiskgreini frá
Stjörnuodda sem tengdur var í gegnum Simrad sónarinn.
Í gegnum Simrad FM 90i sónarinn má einnig stýra
toghlerum. Hleraframleiðandinn Tyberon hefur til dæmis
stýrt sínum nýjum fjarstýrðu hlerum gegnum FM 90i.
Belgstykki séð í gegnum FM 90i höfuðlínusónarinn. Þarna
sést síldin komin aftur í pokann.
Mynd frá FM 90i sem sýnir troll opið
og botninn undir. Örlítil síldarlóðn-
ing er á leið inn stjórnborðsmegin.
Á neðri myndinni sést beint niður
úr höfuðlínusónarnum.
Myndir úr trolli þar sem myndavélin
er tengd gegnum FM 90i. Tekin eru
stýrimerki frá FM90i höfuðlínu-
sónaranum til að opna pokann og
hleypa þannig óæskilegum afla út
og loka síðan pokanum aftur, þegar
fiskur á að fara aftur í pokann. Hér
sést pokinn annars vegar lokaður
til vinstri og hins vegar opinn til
hægri.
Veiðarfæri & veiðitækni