Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Qupperneq 3
3
m SKIPULAGS-
—mal
4. TBL. 2. ÁRG. DES. 1981
Fréttablaðið SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS er gefið út
af Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, Hamraborg 7, 200
Kópavogi, sími 45155 og kemur út fjórum sinnum á ári.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Ólafsson.
EFNISYFIRLIT:
4
9
15
Torfi Jónsson
Notkun upplýsinga við skipulag.
Textavinnsla í tölvu.
Um staðgreini í Reykjavík.
Eldvirkni á nútíma.
Sorphirða.
Könnun á valvöruverslun.
Forsíðumynd gerði Torfi Jónsson. Torfi er fæddur á Eyrar-
bakka, 1935. Að loknu námi í Verslunarskóla islands fór
hann til Þýskalands og lauk námi árið 1961 við listahá-
skólann í Hamborg. Hann er nú kennari við Myndlista og hand-
íðaskóla íslands. Hann hefur haldið einkasýningu í Reykja-
vík og tekið þátt í samsýningum í Noregi og Hamborg m.a.
Hann hefur rekið eigin teiknistofu í 15 ár og unnið sem
bókagerðarmaður bæði í myndskreytingum og týpógrafíu í
Noregi í 3 ár
UPPLÝSINGAR.
Að undanförnu hefur mikið verið rætt um nauðsyn þess að sam-
ræma upplýsingakerfi og upplýsingasöfn opinberra aðila. Á
ráðstefnu sem haldin var á Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins
um þessi mál í október s.l. kom fram að miklir fjármunir fara
nú í súginn á þessu sviði hérlendis. Einnig var á það bent að
slík sóun fjármuna muni fara vaxandi á komandi árum í kjölfar
aukinnar tölvuvæðingar, verði ekkert að gert.
Á skipulagssviðinu einu er hér hugsanlega um mikinn ávinning
að ræða, en áætlað hefur verið að kostnaður við söfnun og með-
ferð upplýsinga sé milli 50-70% af þeirri vinnu. Skipulag
þéttbýlis (og landnotkunar almennt) hefur þá sérstöðu að nauð-
synlegt er að geta staðsett upplýsingar tiltölulega nákvæmlega.
Staðgreinikerfi sem gerir slíka staðsetningu upplýsinga mögulega
hefur verið tekið upp í Reykjavík, og komið hafa fram óskir um
að önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu verði einnig stað-
greind (sjá bls. )
Samræming korta og upplýsinga sem skráðar eru á þau er hér
einnig mjög mikilvægt mál, og að undanförnu hafa átt sér stað
viðræður við Landmælingar íslands og fleiri aðila uun víðtæka
samræmingu á þessu sviði.
Fyrirhugað er á komandi ári að leita eftir auknu samstarfi
upplýsingaaðila, skipulagsaðila og annarra sem tengjast þessum
málum, um áframhaldandi samræmingu á þessu sviði.