Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Qupperneq 11

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Qupperneq 11
11 Auðvelt er að fletta fram og til baka í textanum, bæta inn í hann og fella út að vild. Meðhöndlun texta. Þegar vélritun textans er lokið, sér kerfið um að setja hann upp, tölusetja blaðsíður, staðsetja neðanmálsgreinar, búa til efnisyfirlit og atriðisorða- skrár skv. þeim skipunum, sem gefnar voru í vélrituninni. Verði síðar gerðar breytingar á skjalinu, sér kerfið um að endurskipuleggja þessa þætti. Ef t.a.m. bætt er inn í textann eða fellt niður úr honum, þá breytist blaðsíðutal og efnisyfirlit sjálfkrafa. Hraðritunareiginleikar. Einn af aðalkostum ETC-kerfisins er sá að á einfaldan hátt má stytta vélritun endurtekinna orða eða setninga. Á sama hátt má skjóta inn stöðluðum köflum, sem þegar hafa verið vélritaðir og kerfið geymir. Töflugerð. Kerfið býður upp á sérstaklega hentuga aðferð við uppsetningu og vélritun á töflum, þar sem notandinn þarf ekki að hugsa um skipulagningu textans, nema í eitt skipti, áður en vélritun hefst. Þessir eiginleikar kerfisins eru ekki síður hagkvæmir, t.d. við vélritun á ýmiss konar löngum töflum, sem oft eru gerðar aftur og aftur með sömu upp- setningu en breyttum upplýsingum. Uppsetninguna þarf þá aðeins að setja inn í kerfið í eitt skipti fyrir öll. Síðan má kalla á töfluna til notkunar í hvaða skjali, sem hennar er þörf. Skjalavarsla - Öryggi. Kerfið geymir þau skjöl, sem skráð hafa verið. Auðvelt er að kalla þau fram síðar, breyta þeim, taka afrit af þeim að hluta til eða öllum, skrifa á pappír hluta skjals, aðeins breyttar blaðsíður eða allt skjalið. Óviðkomandi aðilar komast ekki að skjölunum. Kerfið stjórnar því, að hver notandi fær eingöngu upplýsingar um þau skjöl, sem hann á. Þannig geta margir óskyldir aðilar notað þetta sama kerfi, án þess að hver viti af öðrum, ef svo má að orði komast, eða hætta sé á að óviðkomandi aðilar komist hver í annars skjal. Tölvupóstur (Electronic mail). Notendur kerfisins geta sent hver öðrum orðsendingar og bréf, ýmist með því að vélrita þau beint inn á skjáinn eða senda skjöl, sem þeir eiga í skjalasafni sínu. Hægt er að senda einstökum aðilum, ákveðnum skjám eða hópum notenda sama skjalið í einu. Með því að fletta upp í sínum eigin "póstkassa" í kerfinu sjá notendur hvort þeim hafa verið send skjöl. Þeir geta þá lesið þau á tölvuskjánum eða skrifað þau á pappír eftir vild. Svarið er sent til baka á sama hátt. Þetta er afar fljótvirkur og ódýr sendingarmáti, sem getur sparað mikinn pappír. Tækjabúnaður. Notandinn þarf ekki annað en tölvuskjá og prentara, tengt tölvunni með símalínu, þ.e. sömu tæki og hann getur notað við aðra tölvuvinnslu. Sérstök tækjakaup þarf því ekki til þess að unnt sé að notfæra sér ETC- kerfið. Afkastamöguleikum og geymslusvæði stórra tölva, eins og þeirra sem ETC er gert fyrir eru lítil takmörk sett. Öryggisatriði varðandi aðgang og

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.