Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Page 13

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Page 13
13 geymslu gagna eru hluti af starfsemi og skipulagi miðstöðvarinnar, sem annast rekstur tölvunnar, en hvíla ekki á herðum notandans. Niðurlag. Hér á eftir verða taldir upp nokkrir af helstu eiginleikum kerfisins. - Sjálfvirk tölusetning og dagsetning blaðsiðna. - Efnisyfirlit verður til á sjálfvirkan hátt £ kerfinu. - Jöfnun texta við hægri spássíu. - Inndregnar setningar o.þ.h. - Breytilegt línubil. - Undirstrikun og feitletrun orða eða setning. - Neðanmálsgreinar staðsettar sjálfvirkt. - Hraðritun. Hægt er að geyma staðlaðar setningar, málsgreinar og töflu- uppsetningar, sem síðan má kalla á þegar þörf krefur. - Hægt er að raða efni í stafrófsröð eða númeraröð, t.a.m. nöfnum, heimilis- föngum, nafnnr., ártölum o.fl. - Kerfið býður upp á samlagningu, frádrátt, deilingu og margföldun talna. - Auðvelt er breyta skjali og skrifa síðan aðeins út þær blaðsíður, sem breyst hafa. - Hægt er að hafa á skjánum samtímis bæði tilbúinn texta og vinnutexta. Þessi eiginleiki auðveldar leiðréttingar. - Einfalt er að endurskipuleggja texta innan sama skjals með því að færa textann til. - Hægt er að færa texta úr einu skjali í annað. - Kerfið býr til atriðisorðaskrá og sér um að halda henni við á eigin spýtur ef þess er óskað. - Hægt er að fá uppgefið hversu oft tiltekið orð kemur fyrir í skjalinu. - Með einni skipun má skipta um orð eða orðasamband inni í texta, og breytist þá viðkomandi orð eða orðasamband alls staðar í skjalinu eða þar sem þess er óskað. - Á fljótlegan hátt má finna hvar ákveðið orð kemur fyrir í texta, annað hvort eitt sér eða ef vill í tengslum við eða sem hluti af öðru orði. - Eins og áður er sagt, er kerfið ekki bundið sérstökum skjám eða prenturum. Þess vegna má nota sama tækjabúnað við textavinnslu og aðra tölvuvinnslu. Það þarf því ekki að kaupa tækjabúnað eingöngu fyrir textavinnsluna. Hér hefur verið reynt að gera grein fyrir því, hvað textavinnsla í tölvu er, og það kerfi sem Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar bjóða notað sem dæmi. Eflaust eru mörg atriði sem þarfnast nánari skýringar. Þeir sem hug hafa á að fræðast nánar um ETC kerfið geta haft samband við undirritaða. Lilja ólafsdóttir deildarstjóri þjónustudeildar SKÝRSLUVÉLA RÍKISINS OG REYKJAV í KURBORGAR

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.