Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Side 31

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Side 31
31 SÖLUKVIMNING: ÞÓRÐUR BEN. SVEINSSON Þórður Ben Sveinsson heldur ura þessar mundir sölukynningu á verkura sínum á Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins. Þórður er fæddur árið 1945. Hann stundaði fyrst myndlistarnám í Myndlista- og handíðaskóla íslands en síðar í Hollandi. Að námi loknu fékkst hann við myndlistar- og kennslustörf í Reykjavík, en hefur frá 1969 fengist við myndlist og kennslu í V-Þýskalandi. ÞÓrði voru veitt Heinrich Heine verðlaunin í Dusseldorf árið 1978. Hann hefur sýnt í mörgum helstu söfnum Evrópu í formi samsýninga og sýndi nú nýverið hugmyndir sínar að framtíðarskipulagi byggðar og umhverfis á höfuðborgarsvæðinu, á, Kjarvalsstöðum. BÓKAGJÖF * * ifc Gunnar Finnbogason, Mógilsá, Kjalarnesi hefur enn gefið Skipulagsstofunni veglega bókagjöf. Um er að ræða bækur sem tengjast skógrækt, m.a: UT MARKS LÆRE eftir Erik Bartnes, Arne Gabrielsen og Lars Nordbye. (1971). ORGANISERING OG PLANLEGGING I UTMARK hefti tekið saman og gefið út af norsku búnaðar- og skógræktarsamböndunum. (1973). TURISMEN OG LANDBRUKET eftir Per J. Randen og Erik Bartnes. (1967). WINDBREAKS AND SHELTERBELTS útg. WMO (1964). PUBLIC RECREATION IN NATIONAL FORESTS: A FACTUAL STUDY; The Forestry Commission, HMSO (1968). Að auki eru rit um: PLANNING RESEARCH, 1964-1967, 3ed. RTPI (1968). ATVINNUMÁL Á NORÐURLANDI, Efnahagsstofnun (1969 . ATHUGUN VEGNA NORÐURLANDSÁÆTLUNAR, Fiskifélag ísl. (1969). MANNFJÖLDAÞRÓUN OG ALMENN BYGGÐASTEFNA Á NORSURLANDI, Efnahagsstofnun (1969). Gunnari eru hér með færðar bestu þakkir fyrir hönd Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þessar bækur hafa þegar verið flokkaðar í safn Skipulagsstofunnar og eru þar til afnota fyrir þá sem vildu nýta sér þær.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.