Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Page 6

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Page 6
YFIRSTJÓNR UMHVERFISMÁLA Yfirstjórn umhverfismála, samkvæmt drögum að frumvarpi til laga um stjórnun umhverfismála. (höf: Stefán Thors, arkitekt og Ingimar Sigurðsson, lögfr.) Hugmyndir um sérstaka lög- gjöf er næði til stjórnunar um- hverfismála hér á landi hafa átt sér talsverðan aðdraganda. Umhverfismál heyra nú undir sex ráðuneyti. Samskipti ráðu- neytanna á þessu sviði eru mjög flókin, en auk þess er skortur á skýrri aðgreiningu á valdssviði. Svipuðu málu gegnir um stjórn- un þessara mála hjá mörgum sveitarstjórnum og um fjölmarga aðra aðila sem að umhverfismál- um vinna. Auk Skipulagslaga, nr. 19/1964 liafa verið sett þrenn lög sem að- allega fjalla um umhverfismál: Lög nr. 85/1968 um eiturefni og hættuleg efni, en samkvæmt þeim starfar Eiturefnanefnd; Náttúru- verndarlög nr. 47/1971, en sam- kvæmt þeim starfar Náttúru- verndarráð; og lög nr. 50/1981, en samkvæmt þeim starfar Holl- ustuvernd ríkisins. Ennfremur er ákvæði að finna í mörgum öðrum lögum t.d. Byggingarlögum, sem hafa bein eða óbein áhrif á umhverfi okkar, rnótun þess meðferð og gæði. Lengi hefur því verið ljóst að æskilegt væri að taka þessum mál- um tak og skipuleggja þau betur, með það fyrir augum að einfalda stjórnun þeirra, gera hana mark- vissari og koma í veg fyrir tví- og margverknað. I ársbyrjun 1975 skipaði þá- verandi ríkistjórn því nefnd undir forsæti dr. Gunnars G. Schram, prófessors, til að endur- skoða og samræma ákvæði laga um umhverfis- og mengunarmál með það fyrir augum að sett yrði heildarlöggjöf um þessi mál, þar sem einnig væri kveðið á um stjórnarfyrirkomulag. Þessi nefnd lauk störfum árið eftir og lagði þá fram tillögu að frumvarpi fyrir ríkisstjórnina. Þetta frumvarp var lagt fram á Alþingi vorið 1978, en hlaut ekki afgreiðslu. Á Alþingi, 1979 - 1980 lögðu siðan þingmenn Sjálfstæðis- flokksins fram frumvarp um um- hverfismál, sem var áþekkt því frumvarpi sem áður var getið, en það frumvarp hlaut heldur ekki afgreiðslu. I júlí 1981 skipaði þáverandi félagsmálaráðherra nefnd undir formennsku Árna Reynissonar til að semja nýtt frumvarp um um- I hverfismál. Átti frumvarpið m.a. að fela í sér að helstu flokkar um- hverfismála yrðu settir undir eitt ráðuneyti. Þessi nefnd komst að þcirri niðurstöðu, að fyrsta frum- varpið, sem flutt var á Alþingi vorið 1978 væri að flestu leyti í fullu gildi, enda hefðu undirtekt- ir stofnana og félagasamtaka sem ljölluðu um frumvarpið yfirleitt verið jákvæðar. Þessi nefnd skilaði síðan þessu máli af sér í september 1981 í formi laga- frumvarps um umhverfismál, ásamt greinargerð. Fljótlega eftir að þessi nefnd hafði lokið störfum tók að bera á gagnrýni viðvíkjandi ýmsum þáttum þessa frumvarps, en í því var m.a. gert ráð fyrir að komið yrði á fót sérstakri stjórnunar- deild umhverftsmála í Fé- lagsmálaráðuneyti, með víðtæku valdi. Ennfremur þótti mönnum að það fyrirkomulag sem frum- varpið gerði ráð fyrir gengi þvert á vald og starfssvið annarra aðila, t.d. fagráðuneyta og stofnana sem þeim eru tengd- ar, heilbrigðisnefnda o.fl., auk þess sem það tæki meira mið af erlendum fyrirmyndum, en upp- byggingu hins íslenska stjórn- sýslukerfis. Þrátt fyrir þessa gagnrýni var engu að síður alm- enn samstaða um að nauðsynlegt væri að koma á lögformlegum tengslum milli helstu aðila sem vinna að umhverfismálum. í ljósi ofangreindarar gagnrýni fól því Svavar Gestsson, félags- heilbrigðis- og tryggingarmála- ráðherra þeim Stefáni Thors, arkitekt og Ingimari Sigurðssyni, lögfræðingi að gera tillögu að nýju frumvarpi, þar sem sérstak- lega væri kveðið á um stjórnun umhverfismála. Við samning þessa frumvarps, sem nýverið hefur litið dagsins ljós, hafa höf- undar eingöngu Qallað um umhverfi utan dyra, en ekki um innra umhverfi, eða starfs- umhverfi manna. I frumvarpinu er lagt til að komið verði á STJORNAR- NEFND þeirra sex ráðuneyta sem fara með umhverfismál, en auk þess eigi sæti í nefndinni full- trúar Náttúruverndarráðs, Hollustuverndar ríkisins, Sam- bands ísl. sveitarfélaga og Land- verndar. Einnig er gert ráð fyrir ráðgjafar- og umsagnarnefnd um umhverfismál, þar sem fulltrúar stofnana og samtaka er starfa að umhverfismálum eigi sæti. Ráðgert er að STJÓRNAR- NEFNDIN íjalli um öll meiri háttar starfsleyfi, mæli fyrir um rannsóknir vegna staðarvals iðn- rekstrar og hvernig þeim og eftir- liti með starfseminni skuli háttað. Frumvarp það sem hér um ræðir hafði ekki enn verið lagt fram á Alþingi í árslok 1982, en full ástæða er til að hvetja sveitar- stjórnarmenn og aðra þá er að umhverfismálum vinna til að kynna sér efni þess. Gestur Ólafsson

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.