Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Side 13

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Side 13
Kortablað: Tegund mmja: __ Hnit: x V Fjöldi: ____ Landareign: Heiti: _____ Lega: ______ Staöhaettir: Lýsing: Munnmæli: Athugasemdir: Opna úr skráningarbók Þjóðminjásafns. Aörar heimildir: Loftmyndir: Liósmyndir: • ■ • Dags.: 19 vegna fjárskorts. ásamt númeri. Jafnframt er skrif'- uð lýsing á fornleifunum og legu hennar, einnig eru skráð munn- mæli og annar fróðleikur sem kann að fást. Lauslegur upp- dráttur er gerður af hverri rúst. I skráningarbókinni er hverri rúst ætluð ein opna og eru 50 slík- ar opnur, þar fyrir aftan eru aðr- ar siður fyrir lengri frásagnir og teikningar. Urvinnsla. Þegar skráningu er lokið á svæðinu þarf að vinna úr upplýs- ingum og koma niðurstöðunum á framfæri. Slíkt mætti t.d. gera með því að gefa út fjölritaða forn- lcifaskrá fyrir hvern hrepp eða hverja sýslu, og dreift yrði á hvern bæ innan viðkomandi svæðis, auk þess sem skráin lægi aðgengileg hjá sveitarstjórnum og skipulagsyfirvöldum. Svipað fyrirkomulag þekkist erlendis. Skráningarbók og önnur frum- gögn yrðu varðveitt á Þjóðminja- safni. I hinni prentuðu fornleifaskrá yrði gerð grein fyrir markmiði skráningar og varðveislu forn- leifa. Taldar yrðu upp allar forn- leifar sem sérsök ástæða þætti til að varðveita. Þá yrði skrá yfir allar skráðar fornleifar viðkomandi sveitarfélaga með upplýsingum og teikningum úr skráningar- bókinni. Síðast yrði skrá yfir hin- ar ýmsu tegundir minja innan svæðisins og kort þar sem minj- arnar yrðu merktar inn á. Með slíkri skrá ætti að vera tryggt að fornleifar hyrfu ekki spör- laust, jafnframt því sem hún yrði opinbert plagg sem kæmi að mikl- um notum við alla skipulagsvinnu og mannvirkjagerð innan svæðis- ins, hvort sem leggja þyrfti veg eða byggja ný hús. Einnig gæti hún orðið mönnum hvatning til þess að halda við fornleifum á sinni landareign og stuðlað að þjóðlcgum metnaði um að eiga og varðveita sögulegar minjar. Fornleifaskráning á höfuðborg- arsvæðinu. Árin 1980 og 1982 voru gerðar vettvangskannanir á vegunt Þjóðminjasafnsins, samkvæmt of- anskráðum aðferðum. Skráðar voru allar sýnilegar minjar í Mos- fellshreppi og Scltjarnar- neshreppi. Einnig hófst skráning í Reykjavík sem ekki er enn lokið. Úrvinnsla er ekki hafin ennþá I Mosfellshreppi voru skráðar alls 180 minjar. Af þcim væri e.t.v. ástæða til að friðlýsa um 20 fornleifar. En þess má geta að nú eru þar aðeins friðlýstar 3 forn- leifar. Á Seltjarnarnesi voru skráðar 55 fornleifar og var cngin friðlýstáður. í Reykjavík er þegar búið að skrá 47 fornleifar, þar sem 2 eru friðlýstar áður. Skráningin bar þann árangur, að vitneskja fékkst um gífurlega margar rústir sem enginn hafði hugmynd um að til væru, aðrir cn þeir sem næst bjuggu, og stund- um jafnvel ekki þcir heldur. Með því að fá heildaryfirlit yfir allar rústir á landinu opnast einn- ig alveg nýir möguleikar lil margs konar rannsókna á mcnningar- oghagsögu þjóðarinnar. Eornleifaskráin verður þannig ekki aðeins nauðsynlegt hjálpar- gagn við alla skipulagsvinnu, heldur einnig undirstaða fjölmargra fræðirannsókna. Eins og fram hefur komið hef- ur Þjóðminjasafnið þegar staðið fyrir undirbúningsrannsóknum og vettvangskönnunum á höfuð- borgarsvæðinu, og hyggst halda því áfram, eftir því sem íjár- 13

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.