Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Page 15

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Page 15
ekki bara stakra bygginga, heldur heilla hverfa. Almennir fjárhags- erfiðleikar virðast hafa breytt við- horfunum, lengi litu menn svo á að gömlu húsin væru fyrir ný- byggingum, nú hugs menn meira en áður um peningaverðmæti þau er í gömlu húsunu liggja. Eg hef talað hér um húsvernd til að benda á að minjavernd er ekki einkamál þeirra sem sjá um að þjóðminjalögum sé framfylgt. Það er hagsmunamál íbúa að vel sé farið með umhverfi þeirra, söfn og fræðimenn geta rökstutt minjaverndun, en stjórnmála- menn verða að taka afstöðu hverju sinni. Söfn og félög A höfuðborgarsvæðinu eru ýmsir sem láta til sín taka sögu þess og minjavernd, bæði félög áhugamanna og stofnanir < Tvö sveitarfélög, Reykjavík og Kópavogur, hafa kostað forn- leifarannsóknir á síðastliðnum áratug, við suðurenda Aðalstræt- is í Reykjavík og á gamla þing- staðnum í Kópavogi. Þjóðminja- safn Islands hefur tvö síðastliðin sumur látið grafa á þingstað við Elliðavatn. Safnið hefur líka látið skrá fornminjar í Mosfellssveit og í Reykjavík. Arbæjarsafn er minjasafn Reykjavíkur og er nú 25 ára gam- alt. Borgarminjavörður er for- stöðumaður þess og ráðgjafi Reykjavíkurborgar um minja- vern, en umhverfismálaráð fer með stjórn safnsins. I Hafnarfirði starfar byggðasafn og þar hefur hús Bjarna Sívertsen verið gert upp. Sýning safnsins var í Bry- despakkhúsi, en það er nú í við- gerð. Með nýrri byggingu fyrir sjóminjasafn gæti þar skapast mjög gott safn á ákjósanlegum stað í miðbænum. Byggðasafninu stjórnar byggðasafnsnefnd, en sjóminjasafnið er deild í þjóð- minjasafni. I Keflavík er Byggða- safn Suðurnesja, og hefur það einnig sérstaka safnstjórn. Eins og í öðrum landshlutum starfa mörg félög áhugamanna um sögu á-höfuðborgarsvæðinu. Félagið Ingólfur nær yfir það allt og meira til. A árunum 1935-39 gaf það út ritið Landnám Ingólfs og einnig bókina Þætti úr sögu Reykjavíkur (1935). Félagið var endurvakið í haust. Þá heíur Sögufélagið og Reykjavíkurborg staðið að útgáfu heimildarrita um sögu Reykjavíkur. I Mosfellssveit var í haust stofnað sögufélag og var jafnvel rætt um að stofna safn. Reykvíkingafélagið var einnig endurvakið í haust og hefur það samstarf við Arbæjarsafn. Einnig var nýlega stofnað Sögufélag Suðurnesja. Félög sem einkum sinna húsvernd eru Torfusam- tökin í Reykjavík og Byggðavernd í Hafnarfirði. Önnur félög með umhverfisáhuga eru t.d. íbúa- samtökin í Grjótaþorpi, Vestur- bænum og Þingholtum. Minja- og söguáhugi manna kemur einnig fram í söfnun örnefna og má þar nefna að félag á Seltjarnarnesi hefur látið prenta örnefnakort. Einnig má nefna til Viðeyingafé- lagið og örugglega eru til fleiri samtök áhugamanna í landnámi Ingólfs. Skipulag og minjar Minjavernd ætti að koma inn í skipulag nýrra svæða, þannig að tillit yrði tekið til allra fornminja sem á skrá væru. Önnur mannvirki ætti að skoða sérstak- lega eins og um nttúrminjar væri að ræða. Þegar breytingar eru gerðar í eldri hverfum er æskilegt að einhver könnun fari fram á öll- um gömlum húsum sem hróflað verður við. A undanförnum árum hafa þeir sem unnið hafa að skipulagi í Reykjavík leitað til borgarminja- varðar og spurst fyrir um forn- minjar og minjagildi bygginga. Árbæjarsafn hefur unnið skýrslu um Grjótaþorp og um önnur hverfi og einstakar byggingar í Reykjavík. Þannig er í Reykjavík komin viss hefð fyrir því að haft sé samráð við minjavörð. Annars staðar á höfuðborgar- svæðinu fellur minjavernd undir þjóðminjavörð, en sveitarfélögin geta haft frumkvæði um verndun bygginga. Nú er verið að endurskoða þjóðminjalög og stendur til að stofna embætti minjavarða á svip- aðan hátt og nú er raunin á Austurlandi. Þar starfar minja- vörður við Safnastofnun Austur- lands á Egilsstöðum og veitir hann öllum söfnum á sínu svæði ráðgjöf. Minjavörður er tengilið- ur við Þjóðminjasafnið og getur samræmt minjastarf hreppa og félaga. Minjarnar um fortíð okkar eru mikils virði, ckki síst á stöðum þar sem mikið hefur verið byggt á jsi.uttum tíma og þar sem verið er að móta ný samfélög. Mcnningar- rainjarnar skipta miklu máli fyrir átthagatilfiningu folks. Það á að vera hlutverk safnanna að veita íræðslu um þessar minjar og þýðinggu þeirra. Áhugamanna- félög um héraðssögu og um- hverfismál gætu stutt að því að menn almennt kynntust þcim minjum sem í kringum þá eru og fengju aukinn skilning á sögu- legu umhverfi sínu. Söfn og félög ættu að vinna saman, þau geta miðlað hvert öðru þekkingu og stutt hvert annað. Slíkt samstarf yrði öllum til ánægju og minja- verndinni til framdráttar. Það væri full ástæða til að þeir sem starfa að minjavernd á þessu svæði og áhugamenn um sögu þess kæmu saman og ræddust við, bæði um mál sem þarf að sinna á stundinni og það samstarf sem hægt væri að hafa í framtíðinni. Nanna Hermansson

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.