Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Page 19

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Page 19
MeÖ kerfisbundnum aðferðum er nú hœgt að sýna, á heildstœðan hátt hvaða áhrif fyrirhuguð stefna, rekstur eða mann- virkjagerð hefur, áður en ákvörðun er tekin umframkvæmdir. þessi vandkvæði geinilega í ljós. Mjög víða hafa því þjóðir, sveitar- félög og fyrirtæki lagt út í fram- kvæmdir af of lítilli fyrirhyggju, og án þess að færa sér í nyt tiltæka þekkingu. Dæmi urn þetta eru fjölmörg. A hpfuðborgar- svæðinu, hefðu t.d. áburðarverk- smiðjan í Gufunesi, Reykjavík- urflugvöllur og álverið í Straumsvík, svo eitthvað sé nefnt, hugsanlega verið gerð öðruvísi úr garði, og valinn annar staður ef fleiri möguleikar á gcrð þcssara framkvæmda, staðsetningu og áhrifum hefðu verið athugaðir í upphafí. Oft eru áhrif framkvæmda eða stefnu mun víðtækari og marg- þættari en nokkra eina fræði- grein grunar og oft er ekki gripið lil nauðsynlegra aðgerða fyrr en í ócfni er komið. Viðkomandi vistkerfi getur hugsanlega þolað eitthvað álag um ákvcðinn tíma, þótt ákveðnar breytingar scgi lil sín. Oft er áhrifa af framkvæmdum að leita í næsta umhverfi, en einn- ig geta þessi áhrif komið fram mjög víða og borist á milli landa. Sýrublandin rigning, sem nú veldur miklu tjóni á mann- virkjum á Bretlandseyjum er þannig ekki eingöngu afleiðing af iðnaði Breta sjálfra, hcldur berst þessi rigning einnig frá að- liggjandi iðnríkjum bæði í austri og vestri. Danir óttast nú einnig að áburðarnotkun þeirra geti hafa valdið dauða á fiski í Norðursjónum, og huganlega getur notkun Islendinga á tilbún- um áburði sem nú nemur röskum 72 þúsund tonnum árlega, líka valdið umtalsverðum áhrifum, til langframa. Mjög oft hefur staðsetning og gerð áberandi framkvæmda vcrið ákveðin án þess að áður hafi farið fram fullnægjandi athuganir á kostum sem koma til greina, þrátt fyrir ákvæði laga um Náttúru- vernd frá 1971 en þar segir: „valdi fyrirhuguð mannvirkja- gerð eða jarðrask hættu á því að landið breyti varanlega um svip, . . . er skylt að leita álits Náttúru- verndarráðs, áður en fram- kvæmdir hefjast.” Þeim sem ferðast um Island með opin augu dylst það varla, að hægt hefði verið að staðsetja og hanna mörg mannvirki, sem reist hafa verið síðasta áratug, mun betur en gert hefur verið. Sama máli gegnir t.d. um svæði þar sem efni hafa verið tekin, hvort hcld- ur um er að ræða grjót, möl eða sand. Til þess að ná betri tökum á þessum málum hafa mörg lönd á undanförnum árum þróað að- ferðir til þess að meta landslag og umhverfi, með tilliti til þess hvar æskilegast sé að leggja t.d. línur, vegi, eða staðsetja meirháttar mannvirki, þannig að þau falli sem best að aðliggjandi umhverfi, en notkun þessara aðferða er samt enn í frumbernsku hér á landi. Mjög oft hafa framkvæmdaað- ilar heldur ekki leitast við að meta félagsleg áhrif meiriháttaar fram- kvæmda, sem skyldi, þótt þau hafi verið mjög veruleg. Þessi áhrif geta bæði verið efnahagsleg, menningarleg og komið fram bæði á einstaklingum, stofnunum og félagshópum. Oft er erfitt að meta þessi áhrif til fullnustu, en mikil reynsla hefur fengist á undanförnum árum við mat á hliðstæðum framkvæmdum er- lendis. Einnig hafa ýmsar aðgerð- ir verið reyndar til þess að draga úr óæskilegum félagslegum á- hrifum framkvæmda. Hérálandi hefur að vísú m.a. verið reynt að meta félagsleg áhrif Kísilmálm- verksmiðju við Reyðarfjörð á veg- um Staðarvalsnefndar, en þar var gengið út frá staðarvali, og ein- ungis athugaður einn kostur við byggingu og rekstur verksmiðj- unnar. Tengsli milli sjókdóma og ýmissa orsaka í umhverfi hafa ekki verið rannsökuð mikið hér á landi til þessa, og oft hefur lítið samstarf vcrið milli lækna og þeirra sem taka ákvarðanir um skipulag, mótun umhverfis eða notkun ýiiiissa hættulegra efna. Með því að nota þá þckkingu sem tiltæk cr í dag á þessu sviði má samt bæði draga verulega úr hættu af mörgum slíkum sjúk- dómum og eins minnka álag á fólk af völdum óæskilegs um- hverfis. Flestar vestrænar þjóðir 19

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.