Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Side 21

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Side 21
sem við berum okkur saman við hafa t.d. sett löggjöf um leyfileg hávaðamörk umferðar í byggð, en enn höfum við ekki látið þetta mál til okkar taka. Eitt þeirra vandamála sem flcstir hafa rekið sig á sem vilja bæta ákvarðanatöku um um- hverfismál, er hve erfitt getur verið að afla upplýsinga, koma þeim á framfæri og fá fólk til að taka tillit til þeirra. I flestum þjóðlöndum er upp- lýsingaflæði að vísu mjög tak- markað og fæstir hafa aðstöðu til að gera sér mikla grein fyrir afl- eiðingum af framkvæmdum og fyrirhugaðri stefnu. Staðreyndin er líka sú, að margir halda sig við mjög einfalda hugmyndafræði í undanförnum árum verið að byggja upp aðferðafræði við mat á áhrifum framkvæmda, til þess ar kosta líka yfírleitt peninga og tíma. Það er heldur ekki sann- gjarnt að krefjast þess af skipu- lagsmönnum að þeir viti um af- leiðingar af öllum þeim frarn- kvæmdum sem þeir fjalla um að óathuguðu máli. Engu að síður er nauðsynlegt að fara hér með gát, og ákveða hvaða upplýsingum er safnað og hvers vegna. Mjög miklu skiptir að vita hvar upplýs- ingar um hugsanleg áhrif fram- kvæmda er að finna og hvernig ódýrast er að afla þeirr. Mjög mikill fjöldi bóka, og tímarita eru gefin út á hverju ári á þessu sviði og það gæli í mörgum tilfellum tekið allt of langan tíma að verða sér úti um nauðsyleg rit og ná þar þeim síðustu og bestu upplýsing- um á viðkomandi sviði. A hinn bóginn hefur á undanförnum árum orðið mjög hröð þróun bæði í skráningu, geymslu og miðlun upplýsinga með tölvum, og nú getum við á tiltölulega auðveldan og ódýran hátt tengst tölvuvæddum upplýsingabönk- um erlendis. Leit í þessum bönk um er því ekki lengur orðin neitt áhorfsmál fyrir okkur, t.d. um hliðstæðar framkvæmdir og fyrirhugað er að reisa hér, eða um atriði sem okkur finnst skipta máli í þessu sambandi, og þessi leit er bæði mun fljotlegri, ódýrari og markvissari en þau vinnubrögð sem hér hafa tíðkast. I ljósi þess hve áhrif fram- kvæmda geta verð fjölþætt og komið víða fram, hafa menn því á undanförnum árum verið að byggja upp aðferðafræði við mat á áhrifum framkvæmda, til þess að tryggja samráð við ólík þekk- ingarsvið, og til þess að geta metið á heildstæðan hátt fyrirfram, hver áhrif framkvæmdanna verði. Með Umhverfismálalöggjöf Bandaríkjanna sem sett var 1969 var stigið mjög mikilvægt skref í þessa átt. Með þessari löggjöf var opinberum aðilum í Bandaríkj- unum lögð á herðar sú skylda að útbúa lýsingu á umbverfis- áhrifum allra framkvæmda á veg- um Bandaríkjastjornar, sem hefðu veruleg áhrif á umhverfi manna. Hér var bæði um að ræða mat á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda á umhverfið, þ.e.a.s. land, loft, vatn, gróður og dyralíf, en einnig var leitast við að meta félagslegar afleiðingar framkvæmdanna. Þannig kerfis- bundið mat á áhrifum fram- kvæmda, sem kallað er á ensku Environmental Impact Assess- ment er aðferð, til þess að skil- greina, segja fyrir um og lýsa þeim áhrifum, sem líklegt má t.elja að ákveðin fyrirhuguð fram- kvæmd eða stefna hafi í för með sér. Niðurstöður af þessari vinnu eru venjulegít settar fram í greinargerð eða skýrslu, og frá því að umhverfismálalögin gengu í gildi í Bandaríkunum, hafa rneiri en 15.000 fyrirhugaðar framkvæmdir verið metnar á þcnnan hátt þar í landi. Margar stærstu lánastofnanir heims, þar á meðal Alþjóðabank- inn hafa lagt áherslu á að þannig athuganir séu nú gerðar fyrir þær framkvæmdir sem þeir lána fé til. Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin hefur einnig látið þessi mál sig mikið varða undanfarin ár, og gengist fyrir ráðstefnum og námskeiðum um þau víða um heim. Þessar hugmyndir hafa líka verið hafðar að lciðarljósi hjá mjög mörgum ríkjum, sem hafa viljað koma þessum málum í betra horf, bæði hvað viðvíkur löggjöf og framkvæmd skipulags. Þannig hafa mörg lönd tekið upp svipaða aðferðafræði við mat á áhrifum fyrirhugaðra fram- kvæmda, og lögð var til grund- vallar í bandarísku umhverfis- málalöggjöfinni. Bandaríkin og Canada hafa nú öðlast mesta reynslu af því að framkvæma slík- ar formlegar athuganir á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda, en þar er slíkt mat bundið við fram- kvæmdir á vegum hins opinbera. I Belgíu er engin heildarlög- gjöf til um þessi mál, en frumvarp var lagt fram á þinginu þar á síðasta ári þar sem m.a. er lagt til, að gert verði að skyldu að framkvæma slíkt mat á áhrifum helstu akbrauta. í Bretlandi geta skipulagsyfir- völd krafist þess að framkvæmda- aðili láti framkvæma mat á á- hrifum fyiirhugaðra fram- ' kvæmda. Einnig geta viðkomandi skipulagsyfirvöld framkvæmt slíkt mat sjálf, eða ráðið til þess ráðgjafa. Ahrif margra fyrir- hugaðra framkvæmda hafa þannig verið metin í Bretlandi t.d. viðvíkjandi olíu og gasvinnslu í Norðursjónum, og Umhverf- ismálaráðuneytið breska hefur gefið út leiðbeiningar til skipu- lagsyfirvalda unt það hvernig slíkt mat skuli framkvæmt. Frakkland hefur einnig bundið í lög að fram skuli fara mat á á- hrifum meiri háttaar fram- kvæmda á franskri grund og hef- ur franska umhverfismálaráðu- neytið gefið út ábendingar um gerð slíks mats. Sem dæmi má nefna, að á síðasta ári voru áhrif meira en 5.000 framkvæmda þar í landi metin á þennan hátt. Af öðrum löndum sem hafa látið þettaa mál mjög til sín taka má t.d. nefna Holland, Irland og Astralíu. Efnahagsbandalagið sendi einnig árið 1980 frá sér ábend- ingar um athuganir vegna fyrir- hugaðra framkvæmda bæði á vegum opinberra aðila og einka- aðila, — til þess að reyna að samræma aðgerðir ríkja Etna- bagsbandalagsins á þessu sviði. Hjá Efnahagsbandalaginu hefur afstaða til þessa máls verið nokk- uð mismunandi eftir löndum. Þessi ríki hafa þó smám saman verið að gera sér grein fyrir því fornkveðna að ,á skal að ósi stemma’ og að haldbesta stefnan í umhverfismálum er sú að reyna frekar að forðast neikvæð um- hverfisáhrif í tíma heldur en að reyna að byrgja brunninn eftirá. I ábendingum Efnahagsbanda- lagsins er leitast við að skilgreina hvaða framkvæmdir það séu, sem 21

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.