Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Qupperneq 23

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Qupperneq 23
fiskistofnunum sem við grund- völlum nútímaþjóðfélag á Islandi á — og hverjar eru horfurnar? Hér er hvorki eingöngu um mengunarvarnir eða náttúr- uvernd að ræða. I raun og veru hafa fáir á móti því að menn reyni að gera sér fulla grein fyrir áhrifum meiri háttar framkvæmda eða afleið- ingum stefnumörkunar, sem hef- ur ánhrif á umhverfið. Það sem menn greinir helst á um er hvern- ig best sé og áhrifamest að framkvæma slíkar athuganir, þannig að þær tefji ekki við- komandi framkvæmdir um of. Megin markmið í þcssu máli hlýtur að vera að bæta þær á- kvarðanir sem við tökum um umhverfi okkar í víðasta skilningi. Við íslendingar eigum ennþá margt ólært í þessum mál- um, en hugsar.lega gæti sú að- ferðafræði sem hefur þróast í þcssum efnum á undanförnum árum gert okkur klcift að taka betri og markvissari ákvarðanir um þessi mál hér cftir en hingað til. Gestur Olafsson EFNISTAKA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Laust jarðset og berg eru án efa meðal mikilvægari auðlinda sem landsmenn eiga. Þessum auð- lindum var þó lítill sómi sýndur allt fram á sjötta áratuginn og nýt- ing þeirra oftast handahófskennt fálm þar sem skortur var á nauð- synlegri könnun og fyrirhyggju. Því síður voru náttúru- verndarsjónarmið í hávegum höfð enda urðu afleiðingar efnis- töku oft á tíðum alvarlegar og kostnaðarsamar auk þess að skilin voru eftir illlæknanleg sár í lands- laginu. Hin öra tæknivæðing hérlendis kemur m.a. fram í vaxandi not- kun stórvirkra jarðvinnslutækja. Jafnframt eru gerðar æ strangari kröfur um styrk og endingu ýmissa mannvirkja. Er því enn brýnna en áður að nýting á bergi og lausu jarðseti sé skipulögð vandlega og tekið sé fullt tillit til umhverfis og náttúruverndar- sjónarmiða. Mörg dæmi eru um ranga eða lítt skynsamlega notkun á rarðseti: gott fylliefni í steinsteypu hefur verið notað til að byggja upp vegi, moldar- blandið jarðset sem malarslitlag og grýttur ísaldarleir til ræktun- ar. I byggðarlagi einu var góð steypuefnanáma urin upp á skömmum tíma og efnið nýtt í grunnfyllingu eða vegagerð. I dag þarf umrætt byggðarlag af þessum sökum að leita langan veg eftir viðurkenndu steypuefni. Fyrsta kerfisbundin efnisleit og rannsókn á námum hófst árið 1957 á vegum Rannsóknastofn- i i Allgóðmalarnáma kom íIjós viðgerðgangna undir Vesturlandsveg viðNesti. 100.000 m5 á Bæjarhálsi. 23

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.