Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Page 3

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Page 3
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 3 gk SKIPULAGS- Höfuðborgarsvæðisins | m m ■ MAL □ Þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu / Birgir H. Sigurðsson Bls. 5 □ Stjórn og skipulag borgarsvæða / Bjarki Jóhannesson 13 □ Stórt aðalskipulag / Svæðaskipulag / Birgir H. Sigurðsson 15 □ Trjáræktarstefna á höfuðborgarsvæðinu / Pétur Jónsson 19 □ Útivist og frítímaiðja — Tillaga að stefnumörkun / Birgir H. Sigurðsson 21 □ Um skóla og skipulagsmál / Helgi Jónasson 23 □ Skipulagsmál með tilliti til brunavarna / Þórir Hilmarsson 25 □ Þekkingarstarfsemi og skipulag / Vilhjálmur Lúðvíksson 31 □ Umferðarforsagnir — til hvers — fyrir hvern / Þórarinn Hjaltason 33 □ Fjarkönnun og skipulag / Emil Bóasson 34 □ Notkun myndbandakerfis í skipulagi / Birgir H. Sigurðsson 36 FRAMTÍÐARÞRÓUN HÖFUÐB ORG ARS VÆÐISINS A næstu mánuðum er ráðgert að tekin verði afstaða til margra þátta svæðaskipulags á höfuðborgarsvæð- inu og að svæðaskipulag fyrir höf- uðborgarsvæðið í heild verði lagt fram til umræðu og ákvarðanatöku um mitt næsta ár. Undirbúningur þessarar ákvarðanatöku, upplýs- ingasöfnun og rannsóknir hafa leitt mörg atriði í Ijós sem nauðsynlegt er að taka sameiginlega afstöðu til. Mörg mál krefjast frekari rann- sókna og ekki hefur verið unnt að sinna fjölmörgum málefnum sem eru mikilvæg fyrir framtíðarþróun svæðisins. Haldgóðar upplýsingar um höfuð- borgarsvæðið, jarðfræði þess, nátt- úrufræði, veðurfræði, mannfjölda, fasteignir og atvinnulíf svo eitthvað sé nefnt eru t.d. algerlega nauðsyn- legar fyrir þá sem þurfa að taka ákvarðanir um framtíð þessa svæð- is, ef þessi ákvarðanataka á ekki að eiga sér stað að verulegu leyti í blindni. Mjög misjafnt er hve hald- góðar upplýsingar eru til um þau svið sem hér um ræðir, og mjög bagalegt er að ýmsar opinberar rannsóknastofnanir á höfuðborgar- svæðinu skuli ekki telja sér skylt, án sérstakrar greiðslu, að hafa til- tækar nothæfar upplýsingar á sínu sérsviði um þetta svæði, þar sem röskur helmingur þjóðarinnar býr. Þær ákvarðanir sem teknar eru við skipulag, og sú stefna sem þar er mótuð reynist oft afdriíarík og oft er bæði óhægt og dýrt að söðla um ef þessar ákvarðanir eru ekki nógu vel grundaðar. Þótt oft sé æskilegt að halda sem flestum möguleikum opnum þá verða ákvarðanir um fjárfestingu í ýmsum kerfum höfuð- borgarsvæðisins (t.d. samgöngu- kerfi, vatnsveitum,, menntakerfi og heilsugæslu) að taka mið af ein- hverri ákveðinni framtíðarþróun, ef vel á að vera. Ef þessi stefna er ekki ákveðin, eða ef tæknimenn þurfa að gefa sér ólíkar forsendur við skipulag þessara kerfa er mikil hætta á því að það takmarkaða fjár- magn sem við höfum til ráðstöfunar nýtist mjög illa. Á Skipulagsstofu höfuðborgar- svæðisins hafa nú verið settar fram grófar hugmyundir um framtíðar byggðaþróun á byggingarhæfu landi á höfuðborgarsvæðinu næstu áratugi. Einnig hefur verið gerð grein fyrir líklegri þróun þessa svæðis á mörgum sviðum, og leitast við að leiða í ljós ýmiss vandamál sem henni eru tengd. Miklu skiptir að þeir sem tengjast þessari ákvarð- anatöku sem nú fer í hönd geri sér fulla grein fyrir eðli þeirra mála sem hér er verið að leitast við að ákveða; hve sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu eru nátengd á mörg- um sviðum, og hve mikilvægt er að hafa sameiginlega viðmiðun, við ákvarðanir innan hvers sveitarfé- lags. GESTUR ÓLAFSSON.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.