Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Blaðsíða 15

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Blaðsíða 15
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 15 Birgir H. Sigurðsson SVÆÐISSKIPULAG — STÓRT SVÆÐISSKIPULAG Dæmi um stflfærða mynd sem notuð er í „STRUCTURE“ skipulagi. í þessari grein verður m.a. fjallað um gerð og hlutverk skipulagsáætl- ana, einkum svæðis- og aðalskipu- lags. Er gerður einhver greinar- munur á þessu tvennu hér á landi, er meðal spurninga sem komið verður inná enn fremur hvort þörf er á breyttum viðhorfum í gerð skipulagsáætlana eða hvort við munum halda áfram að gera skipu- lagsáætlanir í anda „Bredsdorffs- bókarinnar". 1. Það er fjöldinn allur af spurning- um sem koma upp þegar rætt er um þróun byggðar. En fyrst og fremst velta skipulagsfræðingar fyrir sér spurningum um hin ýmsu „kerfi“ sem byggðin samanstendur af, - ástandi þeirra, hvar vandamálin eða hnökrarnir liggja, bæði innan þeirra sem og á milli þeirra. Hvaða úrbætur koma til greina eða eru æskilegar? Þegar fjármagn til fram- kvæmda er af skornum skammti (sem það er yfirleitt) hvaða úrbóta er þörf og hvar skal byrja. Víða erlendis, eins og í ná- grannalöndum okkar, hafa skipu- lagsfræðingar tileinkað sér ákveðin vinnubrögð í byggða og bæjaskipu- lagi. Lög og reglugerðir þessara landa kveða yfirleitt ennfremur skýrt á um alla framkvæmd, t.d. hvers ábyrgðin sé; hver vinni þær; í hvers höndum framkvæmdir skulu vera og síðast en ekki síst hvernig skuli fjármagna helstu þættina í byggðaþróuninni. Yfirleitt er greint á milli nokkurra gerða af skipulags- áætlunum og fer sú skipting fyrst og fremst eftir því hvað er verið að skipuleggja og fyrir hverja. Nefna má í þessu sambandi: „national, regional structure, commune, gen- eral local, district subject plan“ og þannig mætti áfram telja. Gerður er skýr greinarmunur á hverri þess- ara tegundar skipulagsáætlunar fyrir sig og hvaða vinnuaðferð er notuð í það og það skiptið. Til dæmis forðast breskir skipulags- fræðingar sem heitan eldinn öll smáatriði þegar „struktur plan“ er unnið. Þeim er auðvita ekki gleymt, en reynt er að eyða sem minnstum tíma í þau, miklu frekar eru einhverjar meginlínur ígrund- aðar gaumgæfilega, - aðalatriðin. í breskri skipulagslöggjöf er t.d. skipuleggjendum uppálagt að öll kort í „struktur planinu" skulu vera stflfærð til að reyna að forða þeim er um þau fjalla að detta í „smáatr- iðapyttinn“. Sú mikla hagræðing sem felst í svona vinnubrögðum, ég tala nú ekki um tímasparnaðinn sem í þeim fellst hefur verið bresk- um skipulagsyfirvöldum ljós um nokkuð langt skeið. 2. Sú staðreynd, að það geti verið til fleiri en ein „gerð“ skipulags- áætlana er einnig þekkt hér á landi. Og það eru jafnvel þó nokkur ár síðan hérlendir skipulagsfrömuðir, lög og reglugerðir fóru að fjalla um t.d. aðalskipulag og deiliskipulag. í aðalskipulaginu skyldu grófu drætt- irnir í uppbyggingu byggðarinnar teknir fyrir, en deiliskipulagið smærri atriðin þ.e. nánari útfærsla á þeim þáttum sem aðalskipulagið fjallaði um. En menn hafa verið í stökustu vandræðum með hugtakið „svæðisskipulag“. Hvert er hlut- verk þess? Er svæðisskipulag að- eins aðalskipulag sem nær til fleiri en eins sveitarfélags, - einskonar „Stórt aðalskipulag"? Því eigi að vinna það á nákvæmlega sama hátt og aðalskipulagið. Nánar um það síðar. Einhver læddi því inn í umræðuna um þessi mál að, engar breytingar hafi átt sér stað í gerð skipulags- áætlana hér á landi síðan Breds- dorffs bókin var gefin út, öðru nafni Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-83. Vissulega var bókin tíma- mótaverk í íslenskri skipulagssögu og það einnig, þó víðar væri leitað. Þvílíkt og annað eins ritverk í skipulagi hafði aldrei verið sett saman hér á landi og verður að líkindum aldrei gert framar. Svo mikil er bókin í smíðum að allar dagsetningar fóru úr böndum við gerð hennar. Þær eru líklega ekki margar byggðaáætlanirnar sem eru

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.