Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Qupperneq 29

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Qupperneq 29
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 29 Til samanburðar eru hér tölur um bein brunatjón frá World Fire Stati- stics Centre í Genf, útgefnar í mars á þessu ári. Tölurnar eru byggðar á árunum 1979, sem % af vergri þjóðarframleiðslu landanna: Ungverjaland 0,11 Japan 0,12 Spánn 0,18 Austurríki 0,21 Holland 0,21 Bretland 0,21 Finnland 0,25 Bandaríkin 0,26 Svíþjóð 0,30 Frakkland 0,32 Danmörk 0,36 Noregur 0,37 Ef við leyfum okkur að taka meðal- tal 3-ára (1981, 1982 og 1983) fáum við fyrir ísland, að beint bruatjón sem hlutfall af vergri þjóðarfram- leiðslu - 0,16 sem verður að teljast þolanlegt. DAUÐSFÖLL í BRUNUM Á ÍSLANDI Samkvæmt upplýsingum frá Slysa- varnafélagi íslands hafa dauðsföll í brunum á íslandi árin 1981-1983 verið sem hér segir: 1981 4 menn 1982 2 menn 1983 5 menn (þar af 3 á m/b Gunnjóni) Meðaltal þriggja ára er 1,57 pr. 100 þús. íbúa. til samanburðar eru hér fram settar tölur útgefnar í mars 1984 frá World Fire Statistics Centre í Genf, byggðar á árunum 1979 og 1980: Sviss 0,64 dauðsf. pr. 100 þús. íbúa Holland 0,64 Austurríki 1,00 Spánn 1,25 Danmörk 1,33 Svíþjóð 1,80 Japan 1,80 Frakkland 1,90 Noregur 2,27 Bretland 2,39 Finnland 2,64 Ungverjaland 2,64 Bandaríkin 3,64 Það má segja, að ísland sé hér í „góðu“ meðallagi. SKIPULAGSMÁL Ljóst má vera, að það hefur þjóðfé- lagslega geysimikla þýðingu að rétt og vel sé staðið að allri mannvirkja- gerð með hliðsjón af brunavörnum. Skipulagsmálin eru í því efni engin undantekning. Um svo yfirgripsmikinn málaflokk er að ræða, að þess er enginn kost- ur að gera honum viðhlítandi skil í stuttu máli. Úrlausnir fara eftir að- stæðum hverju sinni og því erfitt að gefa lausnir fyrirfram. Eftirfarandi má þó tiltaka: 1) Bil millihúsa er afgerandi þáttur, til að fyrirbyggja útbreiðslu elds. Einnig skipta máli ýmis önnur atr- iði í þessu sambandi, s.s. bygging- arefni, stærð glugga og annarra opa, hæð húsa og stærðir bruahólfa í einu og sama húsi. Þegar unnið er aðskipulagi stórra byggðarkjarna, t.d. iðnaðarsvæða eða miðbæjarkjarna, þarf að taka fullt tillit til útbreiðsluhættu milli húsa eða húshluta. Sé ekki hugað að þessum málum strax í upphafi geta síðari kröfur frá brunamálayfirvöldum orðið mjög kostnaðarsamar. 2) Aðstaða til slökkvistarfa og björgunar á fólki úr brennandi hús- um er veigamikill þáttur við skipu- lag. Sé ekki rétt á þeim málum tekið, getur svo farið að brunamálayfir- völd neyðist til að hindra fyrirhug- uð byggingaráform eða þurfi að fara fram á mjög kostnaðarsamar aðgerðir, til að tryggja slökkvi- og björgunarstörf í hugsanlegum stór- eldsvoðum. 3) Fjarlægð til slökkvistöðva er þáttur í skipulagi stórra byggðar- laga. Til að skýra það mál nánar verða hér settar fram upplýsingar úr norsku brunamálareglugerðinni, Forskrifter om brannvesenets störr- else, organisasjon og utstyr, 2. grein: Þar segir að slökkvistöðvar með fullnægjandi tækjabúnað og mann- skap skuli staðsetja þannig, að við- bragðstíminn frá því að útkall berst þar til slökkvilið er komið á bruna- stað skuli mest vera: 5-10 mínútur: Eldri timburhúsa- hverfi, verslunargötur, (4-10 km) meiri háttar iðnaðarsvæði, meiri háttar vörugeymslur, sjúkrahús, elliheimili, skólar o.fl., fjölbýlishús 4-8 hæða, hús yfir 8 hæðir. 10-15 mínútur: íbúðarhús 3-hæða og lægri, smáhúsaþyrpingar, (10-15 km) meiri háttar iðnaðarsvæði. 15-30 mínútur: íbúðarhverfi 1-2 hæða á stórum lóðum og almenn bændabýli. 4) Vatn til slökkvistarfa er ætíð mjög veigamikill þáttur, sem taka verður fullt tillit til við gerð skipu- lags. Það er ekki fjarri lagi að reikna megi með að vatnsþörf slökkviliða sé um 1 mínútulíter fyrir hvern m3 byggingar í einni og sömu bruna- samstæðu (A-60 brunahólfun). Þetta mundi til dæmis þýða, að 1900 m2 vöruskemma með 4,5 m meðal lofthæð í einu hólfi um 8500 1/mín. af vatni til slökkvistarfs. Samkvæmt enskum heimildum er meðal vatnsþörf þar í landi í stór- eldsvoðum talin vera um 17000 1/ mín. Þetta þýðir að gera verður sérstaka athugun á vatnsveitu- málum og legu vatnsbóla við gerð skipulags, til að tryggja nægilegt vatn til slökkvistarfs. Stórbyggingar má ekki setja niður þar sem hætta er á skorti á vatni. Vatnslagnir í götum þurfa að vera nægilega víðar og vatnsþrýstingur fullnægjandi. Oft geta sjálfvirk vatnsúðakerfi létt mjög álagið á bæjarveitur, þar sem sprinklerkerfi nota mun minna vatn, heldur en dælur slökkviliðsins í allra flestum tilvikum. Oft má taka tillit til vatnsbóla s.s. stöðuvatn, sundlauga eða sjávar. Hagkvæmt getur verið að staðsetja meiriháttar mannvirki við slík „vatnsból“.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.