Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Qupperneq 31
SKIPULAGSMAL HOFUÐBORGARSVÆÐISINS
31
Vilhjálmur Lúðvíksson
ÞEKKINGARSTARFSEMI
OG SKIPULAG
INNGANGUR
Á síðastliðnu ári var gengið frá
sögulegu samkomulagi milli ríkis og
Reykjavíkurborgar um makaskipti
á löndum og landnotkun á svæðinu
umhverfis Keldur, Keldnaholt og
Grafarholt. Reykjavíkurborg hafði
lengi sóst eftir hluta af 155 ha landi
Keldna til íbúðarbyggðar. Forsvars-
menn háskólans og Tilraunastöðv-
arinnar í meinafræði á Keldum
vildu ekki rýra landrými stöðvar-
innar, bæði vegna nauðsynjar á því
að geta einangrað stöðina við vissar
aðstæður og vegna framtíðarþarfa
háskólans og stofnunarinnar.
Rannsóknastofnanir atvinnuveg-
anna ráða yfir 48 ha erfðafestulands
í Keldnaholti og hafði Reykjavíkur-
borg látið að því liggja að þeim
samningi yrði sagt upp og hluti af
því landi tekinn til baka ef ekki
næðust samningar.
í athugun á landrýmisþörf Háskóla
Islands og rannsóknastofnana at-
vinnuveganna til næstu 50 ára, sem
menntamálaráðuneytið lét gera
áður en gengið var til samninga við
Reykjavíkurborg, kom fram að
vöxtur í starfsemi þessara stofnana
allt frá byrjun aldarinnar hefur ver-
ið mun örari en vöxtur þjóðarfram-
leiðslu á sama tímabili. Vöxturinn
hefur verið nánast veldislægur (ex-
ponential) allt tímabilið, um 5-6%
ári í rannsóknastarfseminni og um
7-8% á ári í fjölgun háskólastúd-
enta samanborið við um 4% meðal-
vöxt þjóðarframleiðslu frá stríðs-
lokum.
Sterkar líkur benda til þess að
innan 50 ára verði full þörf fyrir allt
svæði Keldna og Keldnaholts ásamt
vestursvæði háskólans fyrir
kennslu, rannsóknir og tengda
starfsemi, þ.á.m. hátækniiðnað,
sem tengdist rannsóknastarfsem-
inni.
Með samkomulaginu sem náðist er
tryggt áfram jafnmikið land og áður
í ríkiseign, alls rúmir 155 ha, sem
ætlað er til starfsemi háskólans og
rannsóknastofnana í þágu atvinnu-
veganna. Einnig er samkomulag
um að Reykjavíkurborg leggi til
20-25ha lands í vestan- og norðan-
verðu Grafarholti undir rann-
sóknastarfsemi og iðnað, sem
tengst getur rannsóknastarfsem-
inni.
Loks sömdu aðilar um að gera sam-
eiginlega deiliskipulagsáætlun fyrir
svæðið í heild og skipuðu 4ra
manna samvinnunefnd til þess að
sjá um það. í samkomulaginu er að
finna stefnumótandi ákvæði um að
beina tæknivæddum iðnaði inn á
svæðið er notið geti góðs af návist
rannsóknastarfsemi og æðri skóla
og stuðla þannig að víxlverkan og
aukinni samvinnu milli þessara að-
ila.
Á síðari árum hafa augu mann um
allan heim beinst að þætti tækni-
þekkingar og vísinda sem undir-
stöðu efnahags- og þjóðfélagsfram-
fara. Rafeinda-, tölvu- og upplýs-