Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Qupperneq 33

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Qupperneq 33
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 33 mannleg samskipti, samstarf manna með mismunandi reynslu, - sérstaklega náið samband þeirra sem þekkja kröfur markaðarins og þeirra sem tækniþekkinguna hafa. Skynsamlegt skipulag getur án efa haft mikil áhrif í þá átt að hvetja til samskipta milli manna og rriilli stofnana. Við gerð deiliskipulags- áætlana fyrir Keldnaholts- og Keld- nasvæðið gefst ágætt tækifæri til að efla íslenska þekkingarstarfsemi í þágu atvinnulífs í landinu. Fleira þarf þó að koma til en skipu- lag. Mikilvægast er að rann- sóknastofnanir og atvinnulífið finni gagnkvæman hag sinn af samskipt- unum og að fyrirtæki leggi meira til rannsókna- og þróunarstarfsemi en hingað til. Hið opinbera getur hvatt til þess með því að bjóða framlög til samstarfsverkefna fyrirtækja og op- inberra stofnana. Fjármagn til að kosta einstök verkefni er því lykil- atriði, sem hleypt getur lífi í þau samskipti, sem hér um ræðir. Þórarinn Hjaltason UMFERÐARFORSAG NIR - TIL HVERS - FYRIR HVERN? Dagana 28. - 29. maí s.l. var haldin ráðstefna í Lyngby í Danmörku um ofangreint efni. Ráðstefnan var haldin á vegum NKTF (Nordisk komité for transportforskning) og fór fram í Danmarks tekniske höj- skole. Þeir sem sóttu ráðstefnuna voru eingöngu Norðurlandabúar, aðal- lega tæknimenn. Frá íslandi sóttu ráðstefnuna Baldvin Baldvinsson verkfræðingur við Borgarskipulag Reykjavíkur, Gunnar H. Jóhannes- son yfirverkfræðingur hjá Akureyr- arbæ, Jón Rögnvaldsson yfirverk- fræðingur hjá Vegagerð ríkisins, Júlíus Sólnes prófessor, Sigurjón Fjeldsted borgarfulltrúi í Reykjavík og Þórarinn Hjaltason verkfræðing- ur á Skipulagsstofu höfuðborgar- svæðisins. Á ráðstefnunni var bæði fjallað al- mennt um umferðarforsagnir, gildi þeirra, tilgang, óvissu o.fl. og eins voru tekin fyrir ákveðin tilfelli. Athygli vakti, hve reynsla manna af umferðarforsögnum var misjöfn og afstaða manna til þeirra ólík. Sem dæmi um tilgangslausar umferðar- forsagnir má nefna Farö-brýrnar í Danmörku. Þar var miklum fjár- munum og tíma varið í verkfræði- lega úttekt á mismunandi valkost- um fyrir vegar- og brúarstæði (um- ferðarforsagnir, arðsemisútreikn- ingar o.fl.). Við ákvarðanatöku var hins vegar ekki stuðst við niður- stöður þessara athugana. Á hinn bóginn voru líka á ráðstefn- unni fulltrúar þeirra, sem trúa á og nota flókin reiknilíkön við gerð um- ferðarforsagna. Voru það einkum Svíar og kom fram að í Svíþjóð er töluverðu fé varið í bæði fræðileg og hagnýt verkefni á þessu sviði. í erindum Svíanna komu ekki fram neinar efasemdir um gildi þessara reiknilíkana. Margir söknuðu fleiri fulltrúa frá notendum umferðarforsagna, þ.e. stjórnmálamanna. Enginn frum- mælenda var stjórnmálamaður, en hins vegar var Júlíus Sólnes, bæjar- fulltrúi á Seltjarnarnesi meðal þátt- takenda í panelumræðum, sem voru í lok ráðstefnunnar. Hann lagði fram skemmtilega uppskrift um það, hvernig stjórnmálamenn geta misnotað umferðarforsagnir í sína þágu: Ef leggja á út í vinsæla en óarðbæra framkvæmd þá þarf bara að láta nógu marga aðila spá um umferðarmagn og reikna arð- semi og taka síðan ákvörðun á grundvelli hagstæðustu niðurstöðu. Gjarnan má taka ýmsa félagslega þætti með í reikninginn, þó þeim sé venjulega sleppt við útreikninga á arðsemi annarra mannvirkja. Fyrirlestrar ráðstefnunnar eða út- drættir úr þeim liggja frammi á Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins,

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.