Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Page 34
SKIPULAGSMAL HOFUÐBORGARSVÆÐISINS
34
Emil Bóasson
FJARKÖNNUN OG SKIPULAG
í greininni verður leitað svara við
þeirri spurningu hvort fjarkönnun
úr gervihnöttum geti komið að
gagni við vinnu og undirbúning að
skipulagsmálum bæja og borga.
INNGANGUR
Fjarkönnun úr gervihnöttum á sér
stutta sögu eða um aldarfjórðung.
Hagnýting gagna úr gervihnöttum
var framan af og reyndar enn, fyrst
og fremst miðuð við hernaðarlega
hagsmuni þeirra er komu þeim á
loft, en á síðasta áratug rann það
ljós upp fyrir vísindamönnum að
meira en stríðsgagn mætti hafa af
þessum rándýru tækjum.
Gervihnettir hafa því verið notaðir
í sí auknum mæli til að fylgjast með
og kanna náttúrulegar auðlindir og
ástand þeirra. Þannig má fylgjast
með gróðri og gróðurhorfum úr
gervihnöttum hitaskiptum sjávar,
veðurfari, hafís, og gögn frá gervi-
hnöttum þykja nauðsynleg þegar
leitað er olíu og málma. Einnig hef-
ur færst í vöxt á síðustu árum að
fylgjast með vexti og þróun borga
og bæja með aðstoð gagna frá
gervihnöttum.
Algengur er sá misskilningur að
gögn frá gervihnöttum muni leysa
af hólmi eldri aðferðir við upplýs-
ingaöflun. Langt er í land að svo
verði og trúlega aldrei. Þar eru
mörg ljón á veginum og það helsta
fjarlægðin en gervihnettir eru í
rúmlega 900 km hæð yfir jörðu.
Þetta er rétt að hafa í huga.
HVAÐA GAGN MÁ HAFA AF
GERVIHN ÖTTUM?
Til er mikill fjöldi mismunandi
gervihnatta sem nýta má á mismun-
andi veg við skipulagsvinnu. Einn
vinsælasti gervihnötturinn á vestur-
hveli hefur verið sá er nefndur er
LANDSAT. Þetta er bandarískur
hnöttur sem Geimferðastofnun
Bandaríkjanna hefur séð um rekst-
ur á. Myndir frá þessum hnetti eða
öllu heldur hnöttum, en þeir eru
orðnir fjórir, hafa verið notaðar
víða og í margvíslegum tilgangi.
Sumar myndirnar eru það sem kall-
aðar eru “fallegar“ og því notaðar
til skrauts, en enn meira gagn hefur
þó fengist af þeim þegar þær hafa
verið notaðar til að kanna eðli yfir-
borðs jarðar og fylgjast með breyt-
ingum á gróðurfari. Einnig hafa
myndir frá þessum gervihnöttum
verið notaðar í allríkum mæli við
gerð landnotkunarkorta víða um
heim (Sabins, F.F., 1978).
Gallar
LANDSAT gervihnöttunum fylgja
þeir agnúar að þeir “sjá“ aðeins í
heiðskíru veðri og björtu. Þetta
þýðir að myndir er aðeins hægt að
gera á daginn en ekki nóttunni og
alls ekki í slæmu skyggni. Þetta
gildir einnig um flugvélar.
Kostir
Kosturinn við myndir sem aflað er
með þessari tækni er hinsvegar, að
þeirra er aflað jafnt og þétt allt árið
um kring af sama landsvæði á átján
daga fresti. Þannig má bera saman í
sjónhending myndir frá mismun-
andi tímum og athuga hvar og
hvernig breytingar hafa orðið.
Þetta er ódýrt og aðgengilegt miðað
við það að taka hefðbundnar loft-
ljósmyndir.
HAGNTING VIÐ
SKIPULAGSVINNU
Mynd 1
Athugunarsvæðið umhverfis Hamilton,
Ontario, Kanada, á mynd frá LANDSAT
gervihnetti. Myndin sýnir svæði sem er
u.þ.b. 25 x 25 km á stærð.