Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Síða 35

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Síða 35
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 35 Nota má gervihnattamyndir til að skoða á einni mynd svæði sem ann- ars þyrfti mikinn fjölda loftljós- mynda af. Gæðin eru sjaldnast jafn- góð og þegar um loftljósmyndir er að ræða, en á móti kemur, að á einni mynd má sjá svæði sem arin- ars þyrfti tugi eða hundruð loftljós- mynda til þess að ná yfir sama svæði. Gera mætti allgóð landnotk- unarkort með aðstoð gervihnatta í mælikvarða 1:50.000 til hliðsjónar við önnur kort og einnig má nota þau til að fylgjast með breytingum á vegum og strandiínum. (Ryerson, R.A., et. al. 1982). Ef hugsað er um kostnað þá er dýrt að taka mikið af loftljósmyndum. Það er háð veðri og vindum og aðgangi að flugvél með viðeigandi búnaði hvort slík myndataka getur farið fram þegar hennar er þörf. Jafnframt er ekki alltaf ástæða til að taka myndir af öllu því svæði sem myndir eru teknar af. Loftmyndaflug er því aðeins flogið þegar nauðsyn krefur og einhverjar verklegar framkvæmdir eru fyrir- hugaðar. Þar má nefna vegagerð, nákvæmt skipulag bæja og gerð ár- eiðanlegra landslagskorta. Ennþá skortir á að til séu mjög áreiðanleg landslagskort í mælikvarða 1:50.000 af íslandi og því þörf á að endurnýja og bæta þau sem til eru. Þegar góður kortgrunnur verður til af landinu öllu má hagnýta gervi- hnattamyndir til að endurbæta og endurskoða þau kort sem fyrir eru, fyrir aðeins brot af því sem það kostar að endurskoða kortin á hefð- bundinn hátt. Aðferðin er í stuttu máli fólgin í því að skoða myndir frá gervihnetti með aðstoð tölvu og myndir af sama svæði frá mismunandi tíma. Tökum dæmi 5 eða 10 ára millibil. Þá kemur fram á myndinni sem gerð er úr þessum tveimur, svæði þar sem einhverjar breytingar hafa orðið. Borg hefur stækkað, skógur minnkað, land blásið upp og strandlína breyst. Aðrar breytingar hafa e.t.v. ekki orðið. Á vegum kanadísku landmælingastofnunar- innar og Fjarkönnunarstofnunar Kanada var gerð athugun á þessum þætti. Leiddi athugunin í ljós að með aðstoð LANDSAT-mynda mætti fækka loftljósmyndum við endurskoðun landslagskorta í mæli- kvarðanum 1:50.000 um 90% og minnka flugtíma um 85% en fá samt fram þær breytingar sem orðið höfðu á tímabilinu (Fleming, E.A., 1980). Þetta mætti taka til athugun- ar við skipulagsvinnu hér á landi. Breytingar á landnotkun Til þess að sýna fram á það sem hér hefur verið sagt verður kynnt at- hugun sem gerð var á því hvort skoða mætti breytingar á landnotk- un umhvefis borgina Hamilton, Ontario í Kanada. í Hamilton og nágrannabæjum eru um 500.000 íbúar. Borgin er mesta stáliðnaðar- borg Kanada og er jafnframt í frjó- samasta ávaxtaræktarhéraði lands- ins sem er kennt við Niagara en þar í grennd er einnig að finna órækt- aða mýrarfláka. Svæðið sem tekið var til athugunar er sýnt á mynd 1 og er u.þ.b. 25 x 25 km á stærð. Mynd 1 er svart/hvít mynd af upp- haflegri litmynd. Aðferðin sem notuð er er sem hér segir: Mynd frá LANDSAT gervi- hnöttum, hin fyrri frá 6. júlí 1974 og hins síðari frá 12. júlí 1978 réttum fjórum árum síðar, eru bornar saman með aðstoð tölvu. Á mynd 2 er sýndur hluti myndanna. Vinstra megin að ofan er hluti myndarinnar frá 1974 og hægra megin sami hluti af svæðinu fjórum árum síðar. Rétt er að veita athygli svæðunum sem merkt eru A og B. Þau skera sig úr sem nær hvít þ.e., svæði A 1974 og svæði B 1978. Árið 1978 er svæði A svipað öðrum byggðum svæðum en 1974 var svæði B gróið land. Myndunum er síðan varpað saman á myndinni að neðan, þar sker svæði A sig úr sem ljóst og svæði B er gráleitt. Til hlið- sjónar er mynd 3 sem er smækkuð mynd, upphaflega í mæli- kvarðanum 1:10.000 þannig að á henni er sýnt svæði sem er 2,3 x 2,3 km. Inn á myndina eru merkt svæð- in A og B. (Bóasson, E., 1981). Hvað var að gerast hvort ár? Mynd 2 Hluti athugunarsvæðisins í júlí 1974, sama svæði 1978 og svæðin lögð hvort yfir annað. A og B eru svæði þar sem nýbyggingar eiga sér stað.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.