Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Síða 37
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
37
Birgir H. Sigurðsson
NOTKUN MYNDBANDAKERFIS
í SKIPULAGI
1. INNGANGUR
Notkun myndbanda í atvinnulífinu;
hjá opinberum aðilum og ekki síst
innan fræðslukerfisins, hefur aukist
mjög hratt síðustu árin. Þessum
þremur aðilum er það sameiginlegt
að þar fer fram stöðug, umfangs-
mikil og oft á síðum kostnaðarsöm
söfnun og miðlun upplýsinga og
fróðleiks.
Til skamms tíma hefur söfnun þessi
og miðlun aðallega farið fram
munnlega og skriflega. En það ger-
ist nú æ algengara að upplýsingum
og fróðleik ýmiskonar er miðlað
með tölvum og sjónvarpskjám. Þó
þessi tækni sé enn ekki mjög langt á
veg komin hér á landi, - sérstaklega
miðlun í gegnum myndbönd/ sjón-
varp, þá gerast þær raddir æ hávær-
ari sem hvetja til slíkrar notkunar.
2. NOTKUN MYNDBANDA
VIÐ SKIPULAG
Víða erlendis er notkun mynd-
banda við gerð skipulags að ryðja
sér til rúms í mjög ríkum mæli. Er
það einkum í tengslum við almenna
skipulagsvinnu, ákvarðanatöku og
til kynningar á skipulagshugmynd-
um t.d. meðal almennings. Þar er
ennfremur fullyrt að framsetning
og kynning á skipulagshugmyndum
sé einn mikilvægasti þáttur skipu-
lagsvinnunnar; í þessum efnum geti
myndbandstæknin komið að mjög
góðum notum. En kostir mynd-
bandsins umfram talað og/eða ritað
mál skulu ekki raktir.
3. MYNDBANDAKERFI Á
SKIPULAGSSTOFUNNI
Fyrir stuttu var keypt myndbanda-
kerfi til nota á Skipulags- stofu höf-
uðborgarsvæðisins. Fyrir valinu
urðu VHS-kerfi af JVC og Pana-
sonic gerð. Myndbandakerfi þetta
samanstendur af tökuvél og skjá
(sjá mund). Fyrirhuguð notkun
þessa myndbandakerfis á Skipu-
lagsstofunni má í grófum dráttum
skipta í þrennt:
1. TIL GEYMSLU Á
UPPLÝSINGUM
í þessu sambandi mætti t.d. nefna
þann möguleika að skrá skyggnu-
safn Skipulagsstofunnar á mynd-
bönd. Ennfremur mætti nota mynd-
bandstæknina á svipaðan hátt við
glæru- og kortasöfn stofunnar.
2. Á FUNDUM
í tengslum við fundi, þar sem
ákveðið fundarefni yrði flutt af
myndbandi ýmist á Stofunni eða
utan hennar. Á slíkt myndband
væri hægt að gera stutta dagskrá
(prógram) yfir viðfangsefnið, sýna
myndir af vettvangi hugsanlegar úr-
bætur (ef þannig háttar), blanda
saman texta, mynd og tali viðkom-
andi efnum o.s.frv. Það sem meira
er, þessa sömu dagskrá væri hægt
að endurtaka, - sýna hana fleirum,
svo og til þess að rifja upp síðar. í
þessu sambandi eru möguleikarnir
mjög margir.
Eins og fram hefur komið þá hefur
myndbandanotkun í skipulagi færst
mjög í vöxt. Það opnar því vissu-
lega fyrir þann möguleika að kaupa
inn eða leigja myndbönd að utan
eins og frá Transport and Road
Research Laboratory í Englandi
svo dæmi séu tekin. Myndböndin
væri hægt að nota til kynningar á
fundum skipulagsaðila, meðal ráða-
manna og víðar.
3. TIL FRAMLEIÐSLU Á
MYNDBÖNDUM Á SVIÐI
SKIPULAGS TIL
DREIFINGAR
Af nógu er að taka í þessum efnum.
En til að gefa smá hugmynd, mætti
nefna myndefni eins og „hvaða að-
ferðum er mögulegt að beita við
mat á umhverfisáhrif fram-
kvæmda“. Annað myndband gæti
fjallað um samræmt staðgreinikerfi
fyrir höfuðborgarsvæðið. Það
þriðja gæti fjallað um skipulag
byggða og bæja til kynningar meðal
almennings. Einnig væri hugsanlegt
að nýta slíkt efni til fræðslu fyrir
ákveðinn áhorfendahóp t.d.
sveitarstjórnarmenn, skólafólk
o.s.frv.
r~
i ~i
imi
MYNDBAND
TÖKUVÉL ________ S—
FLYTJANLEGT MYNDBAND
SKJÁR
Myndbandakerfi skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins