Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Blaðsíða 8

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Blaðsíða 8
8 Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins I11985 firði, þar sem Flensborgarskóla var breytt í fjölbrautaskóla og slíkum skóla hefir nú verið komið á fót í Garðabæ og öðrum í Kópavogi. Þessi þróun er eðileg og sjálfsögð ef hún leiðir ekki til þess að um offjárfestingu í skólahúsnæði og um- fram framboð verði að ræða. Þar sem vegalengdir eru tiltölulega litlar innan höfuðborgarsvæðisins og fólk sæk- ir vinnu sína daglega milli sveitarfélaga, sýnist eðlilegast að nemendur í fram- haldsnámi geri slíkt hið sama, ef hag- kvæmt þykir. Óeðlilegt er að sveitarfélög fari út í samkeppni um nemendur og komi upp kennsluaðstöðu umfram þarfir aðeins til þess að geta sagt að þessi eða hinn framhaldsskólinn sé staðsettur í sveitarfélaginu. Nauðsynlegt er orðið að öll sveitarfélög á svæðinu taki upp samvinnu sín á milli um skipulag framhaldsnámsins, því svo virð- ist að nú þegar sé nægjanlegt rými til fyrir allt venjulegt framhaldsnám á þessu svæði, en nokkuð skortir á að séð sé fyrir aðstöðu fyrir ýmiss konar sérnám, sér- staklega á verk- og tæknisviðum. Þessi mál verða ekki leyst án þess að ríkisvaldið sé aðili að ákvörðunum um slíkt skipulag þar sem ríkisskólarnir taka meiri hluta framhaldsnámsnema og ríkis- valdið greiðir launakostnað í öllum fram- haldsskólum. Samvinna um þessi mál, eigi hún að ná tilgangi sínum, verður að vera á veeum sveitarfélaganna sjálfra með milliliða- lausum viðræðum við menntamálaráðu- neytið. í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði eru starfandi sérstakar skrif- stofur sem annast rekstur og skipulag skólamála í umboði viðkomandi sveitar- stjórna en í öðrum sveitarfélögum munu aðalskrifstofur sveitarstjóranna sjá um þessi mál. Þetta eru þeir aðilar sem eðlilegast er að vinni að því að koma sameiginlegu skipu- lagi á þessi mál í samvinnu við ráðuneyt- ið og með aðild Skipulagsstofu höfuð- borgarsvæðisins.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.