Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Síða 12
12
Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins I11985
Rannsókn ávana- og fíkniefnamála er í höndum lögreglustjóra
hvers lögsagnarumdæmis samkv. lögum nr. 65, 1975 um
ávana- og fíkniefnamál og hefur enn ekki orðið breyting á
þeirri skipan eftir að rannsóknarlögregla ríkisins tók til starfa
þrátt fyrir ákveðnar ráðagerðir við stofnun RLR, að rannsókn
ávana- og fíkniefnamála yrði hjá RLR.
Með þeirri skipan sem komst á við stofnun rannsóknarlögreglu
ríkisins varð margvíslegur ávinningur.
í þriðja lagi er með því að hafa rannsóknarstjórn á einni hendi
komið í veg fyrir að rannsókn mála tefjist og verði fyrir
spjöllum við sendingar fram og aftur milli umdæma. Höfuð-
borgarsvæðið er nánast ein samfelld heild tengd góðum sam-
göngum þar sem ýmis þjónusta og fleira er sameiginleg fyrir
allt svæðið. Brotamenn komast auðveldlega um allt svæðið
enda hefur mjög oft komið í ljós þegar mál upplýsast að sami
eða sömu aðilar hafa sömu nóttina brotist inní t.d. hús,
verslanir o.fl. í Reykjavík, Kópavogi , Garðakaupstað og
Hafnarfirði.
Fyrst er að nefna þá veigamiklu breytingu að dómsvald í
opinberum málum og lögreglustjórn var aðskilið að nokkru.
Með því að rannsóknarlögreglustjóra var falin löggæsla og
rannsóknarstjórn meiri háttar brotamála á höfuðborgarsvæð-
inu öllu var þessi aðskilnaður alger í Reykjavík því lögreglu-
stjórinn í Reykjavik sem fer með stjórn almennrar löggæslu
hefur ekki með höndum dómsstörf. Annars staðar á höfuð-
borgarsvæðinu og reyndar á landinu öllu fara bæjarfógetar,
sýslumenn og lögreglustjórar með dómsvald jafnframt
lögreglustjórn.
í reynd er það svo um landið allt að rannsóknarlögregla
ríkisins fer tíðast með rannsókn allra meiri háttar brotamála
svo sem alvarlegustu hegningarlagabrot og eru því dómstörf og
lögreglurannsóknir í þeim málaflokkum aðiskilin almennt.
í öðru lagi varð mögulegt að mennta og þjálfa starfsfólk til
rannsókna meiriháttar sakamála svo sem efnahags- og skatt-
svika- og líkams- og manndrápsmála. Með því að beina rann-
sókn meiri háttar mála á einn stað var einnig unnt að búa betur
að þeirri stofnun með tækjum og tæknibúnaði sem er mjög dýr
og krefst sérþjálfunar við notkun.
Að því sem að framan er rakið verður að telja langeðlilegast
að almenn löggæsla á höfuðborgarsvæðinu verði sett undir
sameiginlega stjórn á sama hátt og stjórn rannsóknar og
meðferð meiri háttar brotamála. Löggæsla yrði í öllu falli
skilvirkari, fljótvirkari, öruggari og hagkvæmari, auk þess sem
réttarfar yrði sniðið að hugmyndum og kröfum seinni tíma um
algeran aðskilnað dómsvalds og lögreglustjórnar. Þróunin hér
á landi hefur alfarið verið í þessa átt en segja má að fyrsta
skrefið hafi verið stigið með lögum nr. 56, 1972 um lögreglu-
menn, en þá komst öll lögreglan í landinu undir beina yfir-
stjórn ríkisins, en stærsta skrefið er þó stofnun rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Þótt almenn löggæsla yrði sett undir stjórn eins
embættismanns og höfuðborgarsvæðið gert að einu lögreglu-
umdæmi þyrfti önnur skipan þeirra embætta sem á höfuðborg-
arsvæðinu eru á engan hátt að raskast.
Við sameiningu almennrar löggæslu yrði að gæta þess að
þekking lögreglumanna á staðháttum og mönnum á hverju
svæði fyrir sig glatist ekki en það má tryggja það með því að
hafa verkaskiptingu á grundvallaratriðum eins og lögsagnar-
umdæmin skipta svæðinu nú.
Verkaskipting milli almennrar lögreglu og rannsóknarlögreglu
yrði væntanlega með sama hætti og áður, en þó er mjög
mikilvægt að rannsókn ávana- og fíkniefnamála verði samein-
uð rannsókn meiri háttar brotamála hjá rannsóknarlögreglu
ríkisins eins og til stóð við stofnun RLR enda hefur reynslan
leitt í ljós að verulegur hluti þess hóps brotamanna sem ítrekað
hafa orðið uppvísir að meiri háttar þjófnuðum, skjalafalsi,
fjársvikum og ránum hafa einnig orðið uppvísir að ávana- og
fíkniefnabrotum á svipuðum tíma.
Hefir þá verið gerð nokkur grein fyrir reglum réttarfarslaga
um skipan rannsóknarvalds á höfuðborgarsvæðinu og víðar,
sem þýðingu kynnu að hafa við skipulagsmálefni.
Kortið sýnir skiptingu höfuðborgarsvæðisins í lögsagnarum-
dæmin sex, en allt svæðið er aðalstarfssvæði rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Inn á kortið eru merktar núverandi lögreglustöðvar á svæðinu
en þær eru í Hafnarfirði við Suðurgötu, í Kópavogi við Auð-
brekku og í Reykjavík við Tryggvagötu, Hverfisgötu og Drag-
háls. Starfsstöð rannsóknarlögreglu ríkisins er við Auðbrekku í
Kópavogi. Á Seltjarnarnesi og í Mosfellssveit eru lögreglu-
stöðvar þar sem aðeins er vakt hluta sólahrings.
Byggð á svæðinu hefur víðast runnið saman, mörk lögsagnar-
umdæma eru víða óglögg og óregluleg og mjög óheppileg
sem mörk löggæsluumdæma.
Eins og svæðinu er nú skipt í lögregluumdæmi heyra undir
sömu lögregluyfirvöld, umdæmi sem eru í hvað mestri fjar-
lægð hvort við annað.
Löggæslu í Garðakaupstað og Kjósarsýslu annast lögreglan í
Hafnarfirði. Til þess að sinna löggæslu í Kjósarsýslu þarf lög-
reglan að fara um Garðakaupstað, Kópavog og Reykjavík.