Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Qupperneq 19

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Qupperneq 19
Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins I11985 19 Ég minnist þess t.d. enn í dag, hversu góða þjónustu ég fékk, er ég pantaði fyrst síma í Bandaríkjunum árið 1971. Það var strax svarað í símann. Stúlkan sem svaraði bauð mér síma í öll herbergi íbúðarinnar og af margvíslegum gerðum og litum. Loks kórónaði hún samtalið með því að spyrja hvenær Ég vildi fá símann tengdan. Umskiptin voru mikil fyrir þann sem hafði ekki áður kynnst því að símar fengjust í fjölbreyttu úrvali og fengjust auk þess tengdir, þegar best hentaði viðskiptavininum. Er þessi niðurstaða óhjákvæmileg eða má ná betri árangri? Hér vil ég enn nefna til þrjár ástæður, sem jafnframt vísa veg- inn um úrbætur: 1) Opinber þjónusta er undanþegin sam- keppni og árangur af starfseminni er ekki gerður mœlanlegur. 2) Stjórnmál trufla starfsemina. 3) Opinber þjónusta beitir oft ekki stjórn- unaraðferðum og rekstrartœkni einka- rekstrar. í einkarekstri er samkeppnin afl, sem stöðugt hvetur til betri þjónustu og nýrra sparnaðarleiða. Sé þess ekki gætt, hverfa viðskiptavinir annað. Flest opinber þjón- ustufyrirtæki skortir allt slíkt aðhald, þar sem þau eru undanþegin samkeppni, oft- ast með því að veita þeim einkarétt á því að veita tiltekna þjónustu eða þjónustan er niðurgreidd, þannig að einkarekstur- inn getur tæpast keppt. Einkareksturinn keppir um hylli við- skiptavina sinna. í opinberri þjónustu er þessu oft öfugt varið. Nýr “kúnni“ er til óþæginda, nýtt vandamál. Hann skapar ekki meiri tekjur, hann er byrði á stofn- uninni. Að vissu leyti er þessi staða óhjákvæmi- leg, en þó langt í frá alfarið. Þótt erfitt sé að finna samhengi í opinberum rekstri á milli tilkostnaðar og þjónustunnar sem látin er í té, þ.e hvað skattgreiðendur fá fyrir peningana, er mönnum ekki alls varnað í því efni. Það er hægt að mæla afköst og hagkvæmni og það má innleiða samkeppni í opinbera þjónustu og rekst- ur. Benda má á fjórar leiðir til að auka sam- keppni í opinberri þjónustu og rekstri. í fyrsta lagi að afnema einkarétt sem opin- berir aðilar hafa til að veita tiltekna þjón- ustu. Þetta tilvik á þó einkum við vmsa þjónustu ríkisins í öðru lagi að fjár magna þjónustuna þannig að einkarekst- ur geti keppt í stað þess að greiða mður

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.