Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Síða 30

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Síða 30
3Q_________Skipulagsmál Höfuöborgarsvæðisins I11985_ Upplýsingar frá dómnefnd. Hugmynda- samkeppni um hlutverk og mótun Arnarhóls Segja má. að tvær meginastæður hat'i legið til þess, að Reykja- víkurborg og Seðlabanki Islands ákváðu að efna sameiginlega til hugmyndasamkeppni um hlutverk og mótun Arnarhóls og umhverfis hans. í fyrsta lagi var það mat forráðamanna borg- arinnar að hólnum og svæðinu í kring yrði að gera eitthvað til, ef hann ætti að verða á ný það aðdráttarafl, sem hann áður var, bæði lagfæra hann og laga að þeim kröfum, sem gerðar eru til nýtingar hans sem útivistarsvæðis. í annan stað var fyrirsjáan- legt að lokið yrði við byggingu Seðlabanka íslands árið 1986 en það ár halda Reykvíkingar 200 ára kaupstaðaréttindi borg- arinnar hátíðleg. Aðalinngangur í seðlabankabygginguna verð- ur að sunnanverðu og verður aðkoma að honum á þaki Kola- ports, bifreiðageymslu Reykjavíkurborgar. Þetta svæði tengist Arnarhóli beint auk þess sem bankinn veitir skjól, sem eykur nýtingarmöguleika hólsins verulega, ef rétt er á haldið. Vegna legu sinnar og hæðar er hóllinn ákjósanlegur útsýnisstaður. En hann er einnig kjörinn til útivistar fáist þar skjól auk þess sem útihátíðahöld borgarbúa hafa gjarnan farið þar fram. Dómnefnd var skipuð fulltrúum frá Reykjavíkurborg, Seðla- banka íslands sem auk þess tilnefndu sameiginlegan fulltrúa. Þá tilnefndu Arkitektafélagið og B.Í.L. sinn fulltrúann hvort félag. Nefndina skipuðu Davíð Oddsson borgarstjóri, dr. Jó- hannes Norðdal seðlabankastjóri og arkitektarnir Guðmundur Kr. Guðmundsson. Gunnar Friðbjörnsson og Þórarinn Þórðar- insson. Trúnaðarmaður nefndarinnar var Ólafur Jensson og ritari Hjörleifur B. Kvaran. Dómnefnd ák\að aó hugmyndasamkeppnin skyldi fara fram í tveimur þrepum. í hinu fyrra skyldi leitað á sem óbundnastan hátt eftir hugmyndum og tillögum og skyldi keppnislýsing því vera víð og frjálsleg. Tilagangurinn var sá að gefa sem flestum, jafnt “leikmönnum“ sem sérfræðingum tækifæri til að taka þátt og jafnframt, að laða fram sem fjölbreyttastar hugmyndir sem ekki væru þvingaðar af þröngum fyrirfram afmörkuðum ramma dómnefndar. Keppnin var opin öllum íslenskum ríkis- borgurum og auk þess þeim mönnum erlendum sem dvelja hér á landi Heimilt var að beina fyrirspurnum til dómnefndar til skýringar og fyllingar þeim gögnum sem fram voru lögð af hennar hálfu í upphafi keppninnar. Allmargar spurningar bárust trúnaðar- manni nefndarinnar fyrir tilskilinn frest og fengu þátttakendur svör hennar fyrir meðalgöngu hans. í þeim svörum voru einstök atriði skýrð og nákvæmari teikningar útvegaðar, auk þess sem lesa mátti þá almennu línu, að hugmyndaflug manna ætti að njóta sín í fyrri hlutanum, en nánari línur yrðu settar í hinum síðari. Á hinn bóginn mátti auðvitað frá upphafi vera ljóst að dómnefndin hlyti í áliti sínu á tillögum sem til skoðun- ar væru á fyrra þrepi líta nokkuð til þeirra möguleika sem væru á að framkvæma hugmyndir þær sem bærust á skikkanlegum tíma og innan skynsamlegs kostnaðarramma. Þar sem dóm- nefnd sendi frá sér ýmis ný gögn með svörum við fyrirspurn- um, ákvað hún að framlengja keppnistímann og var skiladagur 28. nóvember s.l. Til þátttöku í síðara þrepi var gert ráð fyrir að velja 3-4 tillögur, auk þess sem boðað var, að dómnefnd hefði heimild til að kaupa áhugaverðar tillögur, sem nýta mætti við frekari úrvinnslu á þeim tillögum sem verðlaun hlytu í fyrri áfanga. Sérstakt fagnaðarefni var hversu margar góðar tillögur bárust í þessa hugmyndasamkeppni, og er það auðvitað vottur um lifandi áhuga manna á þessum bæjarhól höfuðborgarinnar. Hinn mikli fjöldi vandaðra tillagna sem bárust í fyrra þrep þessarar hugmyndasamkeppni gaf tilefni til bjartsýni um niður- stöðu síðari hluta keppninnar. Naumast er hægt að segja að sameiginlega meginlínu eða niðurscöðu sé hægt að lesa út úr öllum tillögunum. Þó má telja víst að hugmyndirnar beri allar með sér að hólinn megi lagfæra og jafnvel sé slíkt nauðsynlegt eigi hann að vera augnayndi í miðbæjarmyndinni og nýtast til almennrar útivistar, sem og stórhátíðarhalda. Þá sýna allar tillögurnar að Ingólfur Arnarson er fastur í sessi í hugum manna á stalli sínum á Arnarhóli. Eins og fyrr sagði var í samkeppnislýsingu gert ráð fyrir, að í síðari áfanga keppninnar yrðu valdar 3-4 tillögur til nánari úrvinnslu, í samræmi við nýja keppnislýsingu. Með hliðsjón af hinum mikla fjölda vandaðra tillagna, sem bárust, og í þeim tilgangi að fá fram fleiri endanlegar lausnir ákvað dómnefndin að velja 6 tillögur í annað þrep til frekari keppni og úrvinnslu. Jafnframt var ákveðið að kaupa tvær tillögur, sem verðlauna- hafarnir mættu hafa gagn af í framhaldsvinnu sinni. í þriðja lagi var ákveðið að veita tvær viðurkenningar sérstaklega fyrir

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.