Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Qupperneq 31
Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins I11985
31
tillögur sem hefðu sitthvað sér til ágætis. en dómnefnd laldi þó
vafasamt að þær væru raunhæfar vegna umfangs kostnaðar
eða annarra þátta
I’illógur til annars þreps samkeppninnai harusi tvrn I' april
1985 og voru niðurstöður dómnefndar sem héi segir
Að höfðu samráði við stjórn og samkeppmsnefnd Arkitektafe
lags íslands var ákveðið að nafnleynd skyldi haldið a síðara
þrepi. Ljóst er að nafnleyndin var tilgangslaus enda hafa allir
höfundar unnið frekar út tillögur sínar og eru þær því auðþek-
kjanlegar.
Þær sex tillögur sem dómnefnd valdi til áframhaldandi keppni
á síðara þrepi eru allar raunhæfar og framkvæmanlegar. Þær
eru um margt ólíkar en sömu hugmyndirnar eru þó útfærðar á
mismunandi hátt í sumum tilvikum.
í tveimur tillögum er gert ráð fyrir nýbyggingu meðfram
Kalkofnsvegi, tvær sýna byggingu undir stöpli Ingólfsstyttu, en
tvær eru nánast án bygginga. Allar tillögurnar sýna svið, sem
nýtist ýmist til minni eða stærri hátíðarhalda. Öll þessi atriði
vildi dómnefnd að yrðu unnin frekar og má sjá árangur þess á
síðara þrepi. í þeim tilvikum sem dómnefnd setti fram athuga-
semdir í umsögn á fyrra þrepi um einstök atriði tillagna hafa
höfundar í flestum tilvikum fært þær til betri vegar. Einstaka
tillögur hafa tekið verulegum breytingu, styrkst og batnað en
aðrar eru nánast óbreyttar en halda fullu gildi sínu.
Tillaga merkt 3 hlaut fyrstu verðlaun í öðru þrepi samkeppn-
innar. Höfundur Birna Björnsdóttir, innahússarkitekt. Sam-
starfsmenn Hilmar Þór Björnsson, arkitekt og Einar Sæmund-
sen, landslagsarkitekt.
Við mat á tillögum hafði dómnefnd ýmsa þætti að leiðarljósi
Annars vegar var litið til Arnarhóls i miðhæiarmvndinni og
tengsla hólsins við nánasta umhverfi I itið var til þe^ að sem
best skilvrði til útivistar iafnt að sumn sem vetn vk 'puðust
holnum s|on og göngutengsla við Læk]argötu og Bankastræti
og innra sktpulag hóls. svo sem gönguleiðn gróðurreitir,
trágangur útjaðra. mannvirk|agerð iafnl tvnrk"mulag og
staðsetnmg leiksviðs sem og útlit og notagildi annarra bygg-
inga meðfram Kalkofnsvegi og undir styttu Ingólfs.
Dómnefndin hefur farið margoft á vettvang og reynt að gera
sér grein fyrir útfærslu hverrar tillögu. Könnun dómnefndar á
lausnum þeirra mismunandi grundvallarhugmynda sem í til-
lögunum felast, leiddi til þess að hún komst að eftirfarandi
megin niðurstöðu um hverjar séu bestu leiðirnar til að Arnar-
hóll fái notið sín í borgarmynd framtíðarinnar.
í fyrsta lagi telur dómnefnd æskilegt að viðhalda sem best
heildarsvip hólsins sérstaklega eins og hann blasir við frá
Lækjartorgi. í öðru lagi að leiksvið sé best staðsett fyrir
miðjum Kalkofnsvegi. Svið á þessum stað er miðsvæðis og
fyrir miðjum Kalkofnsvegi er mestur hæðarmismunur frá há-
hólnum séð. Sviðið hefur engin áhrif á ákjósanleg sjóntengsl
frá Lækjartorgi og stækkun hólsins á þaki Kolaports tengist
sviðinu vel.
Þá hefur nefndin skoðað gaumgæfilega þann kost að reisa
meiriháttar byggingu við Kalkofnsveg. Þótt lausnir á þeirri
hugmynd séu mjög athyglisverðar telur dómnefnd engu síður
að svo stórar byggingar meðfram Kalkofnsvegi breyti um of
heildarmynd hólsins.
Bygging undir stöpli styttu Ingólfs er forvitnileg hugmynd.
Hún hefur marga kosti og þarf hvorki að hafa truflandi áhrif á
umhverfi hólsins né á notagildi hans. Samt sem áður hefur