Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Síða 7

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Síða 7
§<ip3ágsrra! 5 AÐFARARORÐ: UMFERÐ OG UMFERÐARÖRYGGI Á undanfömum ámm höfum við varið mjög miklu fé til þess að byggja upp gatnakerfi á höfuð- borgarsvæðinu. Undanfarin 15 ár hefur bílaeign líka nær þrefaldast, og nú er svo komið að "bíl- isminn" á höfuðborgarsvæðinu kostar okkur röskar 12,000 milljónir á ári. Til samanburðar má geta þess að allar götur á þessu svæði kosta á núvirði álíka upphæð. Þessi kostnaður kemur hka mjög mikið við pyngjur fólks á höfuðborgarsvæðinu, en hjá mörgum fjölskyldum er hátt í fjórðungi af neysluútgjöldum varið tíl samgöngumála. Við viljum líka gera miklar kröfur til gatnakerfisins á þessu svæði. Á því viljum við geta komist fljótt og örugglega mili staða, án þess að valda mengun, hættu og ónæði, og sama máli gegnir um alla vöruflutninga. Það þarf að henta vel fyrir allar ferðir og flutninga og geta tekið breyt- ingum þegar þessar þarfir breytast. Uppbygging gatnakerfis og skipulag umferðar á höfuð- borgarsvæðinu er mikið alvöru- mál, enda hefur þetta svæði algera sérstöðu hér á landi hvað varðar umferðarmál. Því fer samt fjærri að tekist hafi að byggja upp heildstætt samgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu, sem veldur litlu ónæði og hættu og veitir íbúunum góða þjónustu á hag- kvæman hátt. Fjárfesting í umferðarkerfinu hefur heldur engan veginn haldist í hendur við þá miklu aukningu sem orðið hefur á bifreiðaeign á þessu svæði undanfarin ár. Einnig hefur það stuðlað mjög að núverandi ástandi í þessum málum að mörg grundvallaratriði varðandi skipu- lag, hönnun og frágang gatna á þessu svæði hafa síður en svo verið höfð í heiðri. Þótt talsvert hafi verið rætt um nauðsyn þess að komið væri á samræmdum gatnastaðli fyrir allt höfuðborgarsvæðið hefur þessu máli lítið miðað. Þó er munurinn á hönnun og frágangi gatna milli mismunandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu álíka mikill og milli mismunandi þjóðlanda erlendis. Þetta eykur verulega hættu á umferðaróhöppum sér- staklega í slæmu skyggni og að vetrarlagi. Við gerð svæðisskipulags fyrir höfuðborgarsvæðið 1985-2005 var lögð mikil áhersla á að mótuð væri stefna í almennings- samgöngum fyrir allt höfuð- borgarsvæðið. Þessi áfangi náðist ekki og er þetta mál ennþá að talsverðu leyti enn í lausu lofti og veldur fjölmörgum aðilum mikl- um erfiðleikum auk þeirrar óvissu sem ennþá ríkir um framtíð þessara mála. Árið 1981 setti Skipulagsstofa höfuðborgarsvæðisins fram á- bendingar um það hvemig mætti skipuleggja byggð, þannig að umferðarhávaða gætti sem minnst. Ekki er að sjá að mikið tillit hafi verið tekið til þessara ábendinga. Margir skipulagsaðilar á höfuð- borgarsvæðinu virðast heldur engan veginn gera sér fyllilega grein fyrir samhenginu milli þess hvemig land og byggingar eru notuð, hvaða stefnu er fylgt í bifreiðastæðamálum og þess hvemig umferðarálag myndast. Meðan ekki er vilji til að taka á þessum málum af alvöru og á heildstæðan hátt getur bygging einstakra gatna og samhengis- lausar umferðaraðgerðir ekki orðið annað en tímabundið klór í bakkann. Við, íbúar þessa svæðis, greiðum hinsvegar þann toll sem hlýst af þessu stefnuleysi og aðgerðaleysi með dauðsföllum, slysum, mengun og óþarflega miklum samgöngu- kostnaði. Þótt margir aðilar hafi unnið hið ágætasta starf á undanförnum árum við að hvetja fólk til þess að fara varlega í umferðinni og sýna tillitssemi og kurteisi, þá getur það samt engan veginn komið í staðinn fyrir stefnumótun í umferðarmálum fyrir höfuð- borgarsvæðið og heildstæðra, markvissra aðgerða. Umferðarkerfi höfuðborgar- svæðisins er orðið ein órofa heild, sem nauðsynlegt er að skipuleggja og stjórna í heild, ef vel á að vera. Gestur Ólafsson

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.