Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Blaðsíða 13

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Blaðsíða 13
sRipjagsmál 11 akreinar í stað tveggja. hlutinn, nyr vegur ofan Hafnar- VI. Vegir utan þéttbjflis- fjarðar. svæðis V. Litið lengra fram á veg Hér á undan voru talin þau verkefni sem brynust eru og ljúka þyrfti á næstu árum. Miðað við byggðaþróun svæðisins undan- farið og þær spár, sem fyrir liggja um framtíð byggðar á svæðinu, eru mörg verkefni framundan auk þeirra sem áður voru talin. Hér verður minnst á nokkur þeirra. 1. Vesturlandsvegur um þéttbyli Mosfellsbæjar Samkvæmt aðalskipulagi Mosfellsbæjar er gert ráð fyrir að Vesturlandsvegur fari á brú yfir Varmárdalinn nokkru sunnar en núverandi vegur er. Þá á Hafra- vatnsvegur að fara á brú yfir Vesturlandsveg. 2. Nyf "Vesturlandsvegur" Hér er um að ræða nýja leið norður úr Reykjavík um Geld- inganes og Álfsnes, yfir Kolla- fjörð í Kjalarnes, sem tengja mætti á núverandi Vesturlandsveg sunnan Kollafjarðar, í fyrri áfanga. Vegurinn getur tengst núverandi vegakerfi Reykjavíkur um Gullinbrú, en sá möguleiki er fyrir hendi að tengja hann yfir Elliðavog, þegar^byggð hefur verið skipulögð á Álfsnesi. 3. Ofanbyggðavegur Þetta er nýr vegur ofan núverandi byggðar allt frá Breið- holti suður fyrir Hafnarfjörð. Ennfremur felur þetta verk- efni í sér tengingar á nokkrum stöðum frá þessum vegi niður á Reykjanesbraut. Hér er í raun um að ræða vegakerfi fremur en einn veg, sem gera má í allmörgum sjálfstæðum áföngum. Eins og nú horfir kæmu tveir áfangar einna fyrst til álita, þ.e. annars vegar nyrsti hluti þessa kerfis um Breiðholt og Kópa- vogsland og hins vegar syðsti 4. Reykjanesbraut, Fífuhvamms- vegur - Hafnarfjörður Tvöfalda þarf Reykjanes- brautina til Hafnarfjarðar. Verða akreinar þá fjórar í stað tveggja. 5. Fossvogsbraut Fossvogsbraut hefur um nokkurt skeið verið mikið deilu- efni milli Kópavogs og Reykja- víkur. Þá hefur framhald braut- arinnar til austurs verið fellt niður úr skipulagi Reykjavíkur, en möguleikanum þó haldið opnum að ósk Skipulagsstjómar ríkisins. Ekki verður tekin afstaða til þessara álitaefna, en því er þessi vegur nefndur hér að hann er einn af meiriháttar vegum á höfuð- borgarsvæðinu, sem komist hafa á skipulagsuppdrætti. Væri afar æskilegt ef aðilar gætu komið sér saman um að láta fara fram athugun á nauðsyn þessa vegar og þá um leið hver áhrif það hefur á nærliggjandi umferðar- æðar, ef hann kemur ekki. Reykjavík og Kópavogur hafa nú skipað viðræðunefnd til að fjalla um þetta m.a. Þau verkefni sem talin em hér eru margbreytileg, en flest hver stór og dýr. Ekki er auðvelt að sjá fyrir hvenær þau munu koma á dagskrá til framkvæmda; þar ræður byggðaþróun og fólks- fjölgun mestu. Nauðsynlegt er þó að hafa þau í huga, þegar dregin er upp mynd af vegakerfi höfuðborgarsvæðisins. Enn eru ótalin ýmis gatnamóta- mannvirki sem eru mjög dýr, en verða nauðsynleg ekki síður en þau mannvirki sem hér hafa verið nefnd. Af þessu er ljóst að þörf fyrir fjármagn og framkvæmdir í þess- um málaflokki verður áffam mjög mikil. Hér verður getið nokkurra verk- efna á vegum utan þéttbýlis- svæða. Þessi verkefni liggja gjarnan á jöðrum höfuðborgar- svæðisins eða á leiðinni út úr því. Sum þessara verkefna eru þegar á dagskrá en önnur tilheyra ffemur framtíðinni. 1. Vesturlandsvegur í Kjós Unnið er að útboði fyrir kaflann um Eyri milli slitlagsenda og verður honum lokið 1989. Jafnframt á að leggja á næsta ári bundið slitlag á þann kafla, sem eftir er milli Laxár og Hvamms. Með þessum framkvæmdum lýkur lögn slitlags á Vestur- landsveg í Reykjaneskjördæmi. Á nokkrum köflum er þó eftir að byggja veg í endanlegri gerð. 2. Þingvallavegur Á næsta ári verður einnig lagt bundið slitlag á síðasta hlutann af veginum til Þingvalla. 3. Kjósarskarðsvegur Endurbæta þarf Kjósar- skarðsveg þannig að hann geti beturþjónað hlutverki sínu sem tengivegur milli Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. 4. Hafravatnsvegur og Úlfars- fellsvegur Endurbæta þarf báða þessa vegi og leggja þá bundnu slitlagi. Auk þess að þjóna núverandi umferð má líta á þessa vegi sem öryggisleiðir ef eitthvað ber út af á aðalvegunum. 5. Reykjanesbraut, Hafnar- fjörður - Keflavúc Með vaxandi umferð þarf að huga að tvöföldun þessa vegar. Einkum getur byggðaþróun sunnan Hafnarfjarðar haft mikil áhrif í þessa átt.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.