Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Side 21

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Side 21
sftpJagsmál I FARARHEILL 1 87 - ÁTAK TRYGGINGARFÉLAGANNA Siguröur Helgason, framkvœmdastjóri í nóvember á síðasta ári ákváðu bifreiðatryggingafélögin hér á landi að efna til sérstaks átaks í ✓ umferðarmálum. Astæðan var mjög óhagstæð þróun í umferð- inni, fjölgun óhappa og slysa. Til þessa átaks, sem hlaut nafnið Fararheill '87 hefur verið varið einu prósenti af iðgjöldum bif- reiðaoygginga. Markmiðið með þessu átaki er að vekja athygli á og hafa áhrif á umferðarmál hér á landi. A ráðstefnu sem bifreiðatiygginga- félögin héldu í nóvember 1986 fjölluðu ýmsir sérfræðingar um þennan viðamikla málaflokk. Niðurstöður ráðstefnunnar voru margvíslegar, en þær helstu voru, að taka þyrfti ákveðið á málefnum ökukennslu hér landi og einnig að gera þyrfti átak varðandi eflingu umferðarfræðslu grunnskóla. Þá kom fram að yngstu ökumennimir lentu helst í slysum og hefur starfið á þessu ári einkum beinst að þessum þremur þáttum. Verkefni Fararheillar '87 hafa verið margvísleg. Reynt hefur verið að koma umferðarmálum á framfæri í fjölmiðlum. Fararheill '87 gerði snemma á árinu sam- komulag við Stöð 2 um gerð og sýningar á fimmtán stuttum myndum um umferðarmál. Þá hafa verið gerðar myndir til sýninga í Ríkissjónvarpinu, bæði er þar um að ræða erlendar myndir sem hljóðsettar hafa verið á íslensku og einnig hafa verið gerðar sérstakar myndir til sýn- inga. Til að vekja ungt fólk til um- hugsunar um umferðarmál voru gerðar tvær stuttar áróðursmyndir til sýninga í kvikmyndahúsum og sýndu kvikmyndahúsin þessar myndir án endurgjalds. Með þessum myndum var reynt að vekja unga fólkið til umhugsunar um hverjar eru afleiðingar óvar- legs aksturs. Þá var einnig samið lag, sem Fararheill '87 átti aðild að, sem hlotið hefur talsverðar vinsældir. Þetta er lagið "Inn í eilífðina" eftir Bjama Hafþór Helgason á Akureyri. Ástæða er til að ætla, að þetta lag hafi skilað nokkrum árangri. Framkvæmdastjóri Fararheillar '87 hefur heimsótt nokkra fram- haldsskóla á árinu til að vekja athygli nemenda á umferðar- málum og þeirri staðreynd, að það er fyrst og fremst ungt fólk sem slasast í umferðinni. í nóvember var haldin ráðstefna í samstarfi Fararheillar '87, Bif- reiðaeftirlits ríkisins, Umferðar- ráðs, Dómsmálaráðuneytisins og Ökukennarafélags íslands um ökukennslu og umferðarmenn- ingu. Þessi ráðstefna á vonandi eftir að tryggja að settar verði skýrar reglur um ökukennslu, sem verði til að auka öryggi í umferðinni hér á landi. Meðal þess sem fram kom, var nauðsyn þess að sem fyrst verði útbúið æfingasvæði fyrir ökunema og aðra þá ökumenn sem ástæða er til að fái sérstaka þjálfun. Allar aðgerðir Fararheillar '87 hafa miðað að því að vekja fólk til umhugsunar um umferðar- málin. Okkur sem að þessu störfum finnst árangurinn hafa orðið heldur rýr. Því miður hef- ur óhöppum og slysum í umferðinni fjölgað í ár, miðað við árið 1986. Sé miðað við fyrstu tíu mánuði þessa árs, kemur í ljós, að óhöppum hefur fjölgað um rúmlega fimmtán prósent frá síðasta ári. Þá hefur slösuðum fjölgað um 12 af hundraði. Þetta eru tölur tryggingafélaganna. Rétt er að geta þess, að fjölgun óhappa var mikill frá þriðja til fjórða ársfjórðungs 1986. Á þriðja ársfjórðungi urðu að meðaltali 925 óhöpp á mánuði, en á síðasta fjórðungi ársins 1188. Sambærilegar tölur fyrir árið 1987 eru sem hér segir: Janúar - mars 1156 apríl - júní 1039 júlí - september 1116 Þegar tölumar eru metnar er rétt að hafa í huga, að bflum í umferð

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.