Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Qupperneq 24

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Qupperneq 24
"Dómsmálaráðherra skipar Umferðarráð til þriggja ára í senn, og skal hlutverk þess vera: a að beita sér fyrir bættum umferðarháttum, b. að beita sér fyrir því að haldið sé uppi umferðarfræðslu, c. að vera fræðsluyfirvöldum, umferðamefndum sveitarfé- laga og samtökum, er vinna að bættri umferðar- menningu, til hjálpar og ráðuneytis, eftir því sem óskað er og aðstæður leyfa, d. að standa fyrir útgáfu fræðslurita og bæklinga um umferðarmál og hafa milli- göngu um útvegun kennslu- tækja og annarra gagna til nota við fræðslustarfsemi, e að hafa milligöngu um um- ferðarfræðslu í ríkisútvarpi (hljóðvarpi og sjónvarpi) og öðrum fjölmiðlum, f. að sjá um, að á hverjum tíma sé til vitneskja um fjölda, tegund og orsakir umferðar- slysa í landinu með sam- ræmdri slysaskráningu lög- reglu, slysadeilda,sjúkrahúsa, tryggingafélaga sem nái yfir landið allt, g. að beita sér fyrir könnunum á umferðarháttum og öðru, er umferð varðar, h. að vera stjórnvöldum og öðrum til ráðuneytis um umferðarmál, i. að fylgjast með þróun um- ferðarmála erlendis og hag- nýta reynslu og þekkingu annarra þjóða á því sviði, og j. að leitast við að sameina sem flesta aðila til samstillra og samræmdra átaka í umferð- arslysavörnum og bættri um- ferðarmenningu. Umferðarráði ber að hafa samvinnu við þá aðila, félög, samtök og stofnanir, sem fjalla um umferðarmál í landinu og láta sig umferðaröryggi varða. Umferðarráði ber árlega að efna til opinnar ráðstefnu um umferðaröryggismál." Þessi upptalning hefur lítið breyst frá upphafi. Þó er g-liður nýr, svo og lokasetningin - að Um- ferðarráði beri að efna árlega til ráðstefnu um umferðar- öryggismál. Ég vil þó taka fram að hér er aðeins um ramma að ræða. Auðvitað fæst Umferð- arráð við margt annað sem það telur til heilla horfa í umferð- aröryggismálum. Hverjir eiga sæti í Um- ferðarráði? í 113. grein nýju umferðar- laganna stendur: "Dómsmálaráðherra skipar tvo fulltrúa í Umferðarráð án til- nefningar. Skal annar þeirra vera formaður ráðsins en hinn varaformaður. Aðra fulltrúa í Umferðarráð skipar ráðherra eftir tilnefningu og eiga eftirtaldir aðilar rétt á að tilnefna einn fulltrúa hver og annan til vara: Bandalag xsl-

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.