Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Page 25
sRipJagsmal
23
enskra leigubifreiðarstjóra, Bif-
reiðaeftirlit ríkisins, Bflgreina-
sambandið, Bindindisfélag öku-
manna, dóms- og kirkjumála-
ráðuneyti, Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti, Lands-
samband vörubifreiðastjóra,
Landssamtök klúbbanna "Örugg-
ur akstur", lögreglustjórinn í
Reykjavík, menntamálaráðuneyti,
Reykjavíkurborg, Samband ísl-
enskra sveitarfélaga, Samband
íslenskra tryggingafélaga, Slysa-
varnafélag Islands, Vegagerð
ríkisins, Ökukennarafélag Islands
og Óryrkjabandalag íslands."
Nyju lögin gera ráð fyrir þeirri
breytingu að dómsmálaráðherra
mun nú tilnefna varaformann
ráðsins auk formanns. Þeir
munu báðir eiga sæti í
framkvæmdanefnd, ásamt þrem-
ur ráðsmönnum sem Umferð-
arráð velur sjálft úr sínum hópi,
og er þar um nyjung að ræða. Þá
eru þau nýmæli og í lögunum að
dómsmálaráðherra getur skipað
sérstaka rannsóknanefnd umferð-
arslysa skipaða fimm mönnum
með sérfærði- og tækniþekkingu
sem varðar slysalækningar, um-
ferðarskipulag, bifreiðaeftirlit,
löggæslu og tryggingamál. Um-
ferðarráð skal hafa eftirlit með
störfum nefndarinnar.
Frekari rannsókna er ein-
mitt þörf.
✓
Eg bind miklar vonir við skipan
nefndar er rannsaki til hlítar innri
og ytri orsakir umferðarslysa. A
það hefur verulega skort.
Reyndar hefur aðstöðuleysi Um-
ferðarráðs hvað varðar rann-
sóknir og kannanir verið þannig
að nær alla slíka þjónustu hefur
orðið að kaupa að. Þar af
leiðandi höfum við aldrei getað
stundað þvílík vinnubrögð nema
að afar takmörkuðu leyti. Við
höfum t.d. fengið Hagvang til
þess að gera viðhorfakannanir
þar sem fólk hefur m.a. verið
spurt um notkun bílbelta og hvort
það telji sektir æskilegar í því
skyni að fá fólk til að nota þau.
Þá höfum við í samvinnu við
bifreiðaeftirlit og lögreglu gert
viðamiklar umferðarkannanir
undanfarin þrjú ár þar sem
liðlega 2000 bifreiðir hafa verið
athugaðar, ásamt ýmsu varðandi
fólkið sem í þeim var. Á liðnum
árum höfum við einnig staðið að
ýmsum öðrum könnunum. En
ég vildi svo sannarlega geta ráðið
fólk til starfa sem gæti unnið að
margháttuðum könnuðum s.s. á
öryggisbúnaði sem notaður er í
umferðinni. Þar sem nú styttist í
gildistöku nýrra umferðarlaga
væri t.d. fróðlegt að kanna allt
um ljósanotkun í björtu. Þær
niðurstöður yrðu síðan bornar
saman við aðrar norrænar
kannanir um þetta efni sem sýna
ótvírætt gildi þess að aka ávallt
með ökuljósin kveikt.
Við vildum svo sannarlega
gera meira.
Það er mér sem fram-
kvæmdastjóra mikið happ að
hafa, þrátt fyrir rýran fjárhag
Umferðaráðs, á að skipa afar
hæfu samstarfsfólki. Fólki sem
þekkir þennan málaflokk af
langri reynslu, og er allt af vilja
gert til þess að koma góðu til
leiðar. Verkefnin eru óþrjótandi
og því getur verið hvimleitt að
vera stundum að drukkna í
smámálum í daglegu amstri - en
þau mál sem einhverju skipta sitja
á hakanum. Ósk mín er að þetta
breytist.