Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 43

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 43
UMFERÐ OG UMHVERFI ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON verkfræðingur að er athyglisvert að bæði orðin sem mynda heiti greinarkoms þessa byrj a á um. Umferðin er í umhverfinu og táknar ferðir í næsta nágrenni við þann stað sem til umræðu er. Umhverfið er svo það svæði sem er kringum tiltekinn stað. Jafnvel tilraunir til þess að útskýra þessi orð komast ekki hjá því að nota um. Reyndar eru hugtökin umferð og umhverfi svo algeng og mikið notuð að vart tekur því að reyna að skýra þau nánar. I þessari grein verður reynt að gera grein fyrir samverkun milli umferðar og umhverfis. Fyrst og fremst verða athuguð áhrif umferðarinnar á umhverfið en það gagnstæða, þ.e. áhrif umhverfis á umferðina, að nokkru látið liggja milli hluta. Þess ber þó að geta að landnotkun hefur mikil áhrif á umferðina. Þannig veldur hver fermetri af verslunar- húsnæði margfalt meiri umferð á götum en hver fermetri af íbúðarhúsnæði. Það er m.a. starf umferðarsérfræðinga að skýra út og reikna umferðarálagið á gatnakerfið út frá þeirri landnotkun sem fram fer á einstökum svæðum eða reitum og bera svo saman við mælingar. Umferðarálag í framtfðinni má svo áætla út frá því skipulagi (aðal- eða svæðisskipulagi) sem fyrir liggur og þannig meta þörf fyrir umferðargötur í framtíðinni. En það eru þó áhrif umferðarinnar á umhverfið sem helst verður fjallað um hér. Eg hefi kosið að skipta þessum áhrifum í annars vegar í bein og hins vegar óbein áhrif. bein áhrif Beinu áhrifin eru þau sem allir sjá þegar í stað að eru frá um- ferðinni komin. Það sem fyrst og fremst er fylgifiskur bílaumferðar eru slys. Slys á fólki í heiminum eru gífurleg af völdum ökutækja og jafnast á við hemaðarátök, stríð. Á ári hverju deyja 200-300 þúsund manns í umferðarslysum í heiminum og margfalt fleiri slasast. Þetta er staðreynd, sem ekki fer mjög hátt, og virðist eins og fólk almennt sætti sig við að borga þennan toll af umferðinni. Ef sambærilegur fjöldi léti lifið af öðrum orsökum, svo sem flugslysum, nattúruhamförum eða jafnvel eyðni, yrði líklega gripið til harkalegra aðgerða. En þar sem oftast má rekja slysin til þeirra sem verst lenda úti þá er ekki við neinn einstakan óvin að sakast. Til að fækka slysum, eða möguleikum á að slys verði, er beitt skipulagslegum aðferðum. Þannig er reynt að greina sem mest að gangandi og akandi í umferðinni °g að flokka gatnakerfið þannig að á stofnbrautum og Fólk lítur ýmsum augum á umhverfið og hverning megi lagfæra það að eigin óskum. Sumir vilja að ökutækin komist sem greiðast um göturnar en aðrir að þær séu sem vistlegastar. Myndin sýnir ýmis þau úrræði sem grípa má til ef íbúum finnast áhrif umferðarinnar yfirþyrmandi. tengibrautum sé hröðust umferð og flestir bílamir en á safngötum og húsagötum séu færri bílar og hraðinn minni. Þar sem götur og skipulag fyrri tíma samræmist þessu ekki verður oft að grípa til annarra aðgerða, svo sem hraðahindrana. Ætla 41

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.