Mosfellingur - 22.12.2022, Blaðsíða 42
- Jólasögukeppni Helgafellsskóla42
Sérsniðin þjónusta til
byggingaraðila
A L L T . I S - A L L T @ A L L T . I S - 5 6 0 5 5 0 5
Agla mín, þú verður að drífa þig, við
erum að verða of sein,“ hrópaði
mamma frá anddyrinu, orðin frekar
óróleg því hún gjörsamlega HATAÐI að
vera sein. „Já, já, ég er að koma,“ öskraði ég
til baka og tók símann minn úr hleðslu og
setti ofan í tösku.
Við vorum að fara í jólamatarboð hjá
afa og ömmu því það var 24. desember.
Mamma er snillingur í því að vera stress-
uð, sérstaklega um jólin. Mömmu fannst
svo rosalega góð hugmynd að eyða að-
fangadagskvöldinu með ömmu, afa og Lísu
frænku og Elvari kærasta hennar.
„Agla Rut Friðriksdóttir, viltu gjöra svo
vel að koma niður og klæða þig í útiföt
strax.“ Ég leit á klukkuna, sjitt! Klukkan var
12:35 og við ætluðum leggja af stað klukkan
12:00. Ég hljóp niður, klæddi mig í skóna,
út í bíl og pabbi keyrði af stað.
„Jæja, eigum við ekki bara að reyna að
vera glöð, ha?“ sagði mamma til þess að
létta andrúmsloftið. Ég brosti pínu. Ég
meina, það var 24. desember og örfáir
klukkutímar í jól. Af hverju ætti maður að
vera leiður á jólunum?
Ég vissi að þessi jól yrðu soldið öðruvísi
en vanalega því að núna yrðu Lísa frænka
og nýi kærasti hennar með okkur.
Amma og afi áttu heima á sveitabæ, það
tók 2 tíma að keyra þangað og við ætluðum
að gista eina nótt.
„Nei, blessuð elsku Agla mín, guð hvað
þú ert orðin stór,“ sagði Lísa frænka þegar
við komum til ömmu og afa og knúsaði mig
eins fast og hún gat.
Þegar allir voru búnir að heilsast fóru
mamma og Lísa að undirbúa jólamatinn,
en það varð alveg hræðilegt og þurftum við
að hlusta á þær rífast um allt milli himins
og jarðar í eldhúsinu og meira að segja um
hvort rauðkálið ætti að vera heitt eða kalt.
Þær hættu ekki fyrr en amma hótaði að
henda þeim út í svínastíuna.
Við settumst öll niður klukkan sex og
fengum okkur að borða rosalega gott hangi-
kjöt, óskuðum gleðilegra jóla og hlustuðum
á jólatónlist. „Þetta hefði samt verið betra
ef við hefðum bara keypt Ora baunir,“ byrj-
aði mamma en amma leyfði henni ekki að
klára. „Við erum heppin að Lísa fór í búðina
fyrir okkur yfir höfuð,“ sagði amma.
„Já, þú segir það Steinunn mín, þegar ég
var ungur var bara farið einu sinni í mánuði
í kaupstað til að draga björn í bú svo þá var
bara að duga og drepast og mátti heldur
betur naga sig í handakrikana ef eitthvað
gleymdist,“ sagði afi og starði út í loftið eins
og þvara.
Þegar allur maturinn var búinn fórum
við að opna gjafirnar. Eftir það fórum við
inn í stofu og horfðum á Grinch því hún er
klassík.
Klukkan eitt voru allir á leið í rúmið
nema ég, mamma og amma sem vorum að
horfa á veðrið. „Á að vera stórhríð á morg-
un?“ spurði ég áhyggjufull. „Já, greinilega,“
sagði mamma og horfði út um gluggann.
„Hvernig komumst við þá heim?“ spurði ég
en ég vissi svarið nú þegar.
„Við ætlum að biðja fólk í Vestursveit að
fara vinsamlegast ekki út úr húsi og við
biðjumst afsökunar að hafa ekki tekið eftir
þessu fyrr.“
„Jæja, þá er það bara þannig, þið eruð
veðurteppt, en vonandi ekki lengi því
við eigum bara mat fyrir tvo daga,“ sagði
amma og horfði á okkur kvíðin á svip. Ég
og mamma sátum orðlausar í sitt hvorum
stólnum.
Dagana á eftir var veðrið svo brjálað að
við komumst ekki heim. Þegar ég vaknaði
um morguninn 27. desember voru allir
vaknaðir og farnir að tala saman um mat-
arvandamálið. En eftir nokkrar mínútur af
blaðri þá var planið að pabbi yrði að fara
út í hríðina og kaupa eitthvað sem myndi
duga fyrir okkur í nokkra daga í viðbót.
Fimm tímum seinna var pabbi ekki
ennþá komin heim. Við sátum öll orðlaus í
stofunni, svöng, þreytt og hrædd um pabba.
Rafmagnið var farið svo að það voru milljón
kerti út um allt.
Allt í einu heyrðum við skarkala úr eld-
húsinu. Við litum upp og Elvar fór að kíkja
hvað gengi á. „Ég trúi aftur á jólasveinana,“
sagði hann þegar hann kom til baka og
starði á okkur hin eins og hann tryði ekki
sínum eigin augum. Við hlupum öll inn í
eldhús og göptum.
Eldhúsborðið var troðið af alls konar
mat og á einum Cheerios-pakkanum
stóð:
„Frá Stekkjastauri. Ég heyrði í ykkur
tala saman um matavanDræði svo að ég
ákvað að gjefa ölllum bæjjúm hérna eit-
vað til að borða.“
Amma, mamma og Lísa fóru á hnén og
byrjuðu að þakka guði fyrir þennan mat.
„Þetta er blessun!“ sagði mamma og allir
nema ég tóku undir. Ég stóð þarna eins og
þvara og starði á miðann. En það var eitt á
hreinu. Ég trúi á jólasveininn.
Daginn eftir vorum við aðallega að spila
og skoða hvað við fengum í jólagjöf. Veðrið
var ennþá brjálað og allt í einu voru mamma,
Lísa og amma orðnar ógeðslega kristnar og
báðu fyrir öllu mögulegu, Elvar trúði aftur á
jólasveininn og afi virtist vera orðinn ennþá
meira gamaldags en vanalega.
Aftur var eldhúsborðið troðið af mat
nema í þetta sinn var það Giljagaur.
Mamma, Lísa og amma sögðu að þetta
hefði verið blessun meðan ég, Elvar og afi
sögðum að þetta hefði verið heppni. Pabbi
var ennþá ekki sjáanlegur svo mamma var
búin að hringja á björgunarsveitina til að
láta leita að honum.
Næsta dag birtist aftur matur inni í eldhúsi
sem var frá Stúfi. Þetta var ekki alveg eins
mikill matur og hina dagana en hann skrifaði
bara að það væri út af því að hann væri ekki
alveg eins stór og hinir jólasveinarnir.
„Hvað er komið í mömmu þína?“ spurði
kunnugleg rödd. Mér brá rosalega en sá
síðan að pabbi stóð í dyragættinni hjá
eldhúsinu og brosti til mín. Ég stökk upp
og knúsaði hann svo fast. Mamma, Lísa,
Elvar, amma og afi komu fljótlega og við
knúsuðumst öll. „Óh, elsku guð takk fyrir!!”
hrópaði mamma mín og knúsaði mig og
pabba fastar.
„Þú þarft ekkert að þakka guði fyrir
þetta,“ sagði pabbi minn. „Ég er búinn að
vera hérna síðasta tvo og hálfan daginn,“
hélt hann áfram.
„HA?” hrópuðum við öll á meðan pabbi
sprakk úr hlátri.
„Já, sjáiði til, þegar ég lagði af stað út þá
sá ég ekkert og var örugglega í kringum
klukkutíma bara að grafa mig í átt að bíln-
um, síðan átti ég eftir að grafa hann upp
af því að hann var allur undir snjó. Þegar
ég loksins fann hann og var kominn inn þá
tók ég eftir því að þetta var ekki minn bíll,
heldur afa. Þegar ég leit í aftursætið þá sá
ég þar 6 troðfulla innkaupapoka af mat,“
sagði pabbi og við öll horfðum á afa.
„Hva? Ha, já alveg rétt, mér fannst þetta
nú heldur klént og leist ekkert á þessa
kaupstaðarferð sem þið mæðgur fóruð
þarna fyrir jólin. Ég get sagt ykkur það að
hann Sigfinnur gamli á Skítalæk fór ekki
nema þrisvar á ári í kaupstaðarferð, en þá
átti hann heldur ekkert eftir í búrinu nema
hrútspunga vikum saman.“
„Já, já, já, við náum því afi, haltu áfram
pabbi,“ sagði ég óþolimóð.
„Ég reyndi að klöngrast aftur út úr bíln-
um og inn með pokana en það endaði á að
taka langan tíma. Þegar ég var næstum því
kominn að dyrunum þá ákvað ég að hrekkja
ykkur aðeins og gróf mig niður í kjallara
með matinn. Ég sendi ykkur svo matargjafir
frá jólasveinunum úr kjallaranum. Þetta
var frekar fyndið en ég varð eiginlega líka
pínu smeykur um hvað hefði komið yfir
fólkið hérna svo ég ákvað að hætta þessu
og koma til ykkar úr kjallaranum,“ sagði
pabbi brosandi og beið eftir einhverjum
viðbrögðum. Eftir svona mínútu af þögn
sprungum við úr hlátri.
Næsta dag fórum við aftur heim. Hríðin
var hætt, snjórinn hafði skolast í burtu um
nóttina svo það var bara rosaleg hálka,
eiginlega allt var orðið eins og það var. Það
eina sem var eftir var að kveðja.
Amma og afi stóðu í dyragættinni og
töluðu við mömmu og pabba.
„Nei, já, ég man eftir, þegar ég sé þennan
bíl,“ sagði afi og benti á skærrauða bílinn
sinn.
„Ég man eftir að hafa farið í kaupstaðar-
ferð á þessum bíl. Já, kaupstaðarferðir, já
sko, þegar ég var ungur.“
Jólasaga
Karitas Jónsdóttir úr
9. bekk Helgafellsskóla
vann jólasögukeppni
skólans 2022.
sagan birtist í jólablaði
Mosfellings í dag.